Aðalfundur Ferðaklúbbsins 4×4 2025 verður haldinn mánudaginn 12. maí kl. 20:00 í húsnæði klúbbsins, Síðumúla 31 (gengið inn að neðanverðu), Reykjavík.
Í lögum klúbbsins (
https://www.f4x4.is/wp-content/uploads/2024/04/2023-Log-Ferdaklubbsins-4×4-1.pdf) er fjallað um Aðalfund klúbbsins í 3. grein og hljóðar hún þannig:
Aðalfundur hefur æðsta vald í öllum málefnum félagsins. Hann skal haldinn árlega í maí mánuði.
Fundurinn skal boðaður félagsmönnum með auglýsingu á forsíðu á vefsíðu félagsins með minnst sjö daga fyrirvara. Í fundarboði skal greina fundarefni svo og fjárhagslegar tillögur, sem ætlast er til að bornar verði undir atkvæði. Rétt til setu á aðalfundi hafa allir félagar í öllum deildum og móðurfélagi sem hafa staðið full skil á gjöldum til félagsins. Hinir sömu hafa einnig atkvæðisrétt á aðalfundi.
Á dagskrá aðalfundar skulu vera venjuleg aðalfundarstörf, það er:
- Setning fundar og dagskrá kynnt.
- Kosning fundarstjóra og fundarritara.
- Skýrsla stjórnarinnar um störf félagsins á liðnu starfsári.
- Umræða um skýrslu stjórnar.
- Skoðaðir reikningar lagðir fram og skýrðir.
- Umræða um reikninga og þeir bornir upp til samþykktar.
- Skýrslur nefnda, ef kjörnar hafa verið.
- Lagabreytingar frá stjórn, nefndum eða félagsmönnum.
- Kosning stjórnar, varamanna og fastanefnda.
- Kosning Skoðunarmanna.
- Önnur mál.
- Fundarslit.