Stjórn Sambands ungra Sjálfstæðismanna boðar til 48. sambandsþings SUS helgina 3. - 5. október 2025.
Þingið verður haldið í Reykjavík í samstarfi við Heimdall, félag ungra sjálfstæðismanna í Reykjavík, í gamla Landsbankahúsinu.
Það stefnir í sögulegt þing enda 42 ár síðan SUS hélt sambandsþing sitt í Reykjavík. Nánari dagskrá verður kynnt síðar.
- Dagskrá -
Föstudagur – 3. október
17:00 til 18:00: Afhending fundargagna - gamla Landsbankahúsið
18:00 til 18:15: Setning þings, kosning þingforseta, fundarritara, kjörbréfanefndar, kjörnefndar o.fl. - gamla Landsbankahúsið
18:30: Vísindaferð í ráðhús Reykjavíkur
21:30: Gleðskapur fram á nótt – Project XD í Kolaportinu
Laugardagur – 4. október
09:00 til 10:00: Morgunmatur í gamla Landsbankahúsinu með forsvarsmönnum úr atvinnulífinu.
10:00 til 12:00: Málefnastarf - gamla Landsbankahúsið
12:00 til 13:00: Hádegishlé
13:00 til 14:00: Grilluð forysta - gamla Landsbankahúsið
14:00 til 15:30: Fundarmenn fá val um að fylgjast með pallborði um húsnæðismál í gamla Landsbankahúsinu eða fara á fyrirlestur á ráðstefnu Students for liberty í Safnahúsinu á Hverfisgötu.
16:00 til 18:30: Vísindaferð
20:00: Hátíðarkvöldverður - gamla Landsbankahúsið
Sunnudagur – 5. október
11:00 til 12:00: Fundur. Stjórnmálaályktun o.fl. - gamla Landsbankahúsið
12:00 til 13:00: Hádegishlé
13:00 til 15:00: Kosningar, ályktanir, lagabreytingar og önnur mál
15:00 til 15:15: Þingslit
- Hátíðarkvöldverður -
Það verður öllu tjaldað til á hátíðarkvöldverði SUS eins og áður. Mörgum finnst þetta hápunktur sambandsþingsins og því máttu ekki láta þig vanta á þessa glæsilegu veislu.
Forréttur:
Nautacarpaccio með pestói og parmesan á snittu.
Tómatar, mozzarella og basil ásamt sjávarsalti og svörtum pipar.
Soft Taco með bbq-svínasíðu, mangó og chili-mæjó.
Andar arancini með piparrótarkremi.
Aðalréttur:
Kjöt er skorið niður á hlaðborði ásamt meðlæti.
Heilsteikt nautalund og soðsósa.
Kalkúnabringur, gravy ásamt kalkúnafyllingu.
Ofnsteiktar smælkikartöflur, sætar kartöflur, steikt brokkolí með yuzu og soya, kimchi (hvítkál), salat með tómötum, sólþurrkuðum tómötum, grilluðum paprikum, kapers, steinselju, basil og mozzarella.
- Gisting -
Einn af mörgum kostum þess að halda sambandsþingið í Reykjavík er það að nóg er til af hótelgistingu. Það þekkja líka flestir vini og vandamenn á höfuðborgarsvæðinu og því ætti ekki að vera neitt mál að redda sér gistingu. Engu að síður er SUS með flotta samstarfsaðila sem bjóða upp á afslætti sem við hvetjum fulltrúa til að nýta sér.
Freyja Gesthouse: Senda á netfangið
cmVjZXB0aW9uIHwgZnJleWphZ3Vlc3Rob3VzZSAhIGNvbQ==, minnast á að þú sért á leið á sambandsþing SUS.
2ja manna herbergi 25.000 per nótt
Einstaklingsherbergi 20.000 per nótt
CenterHotels: 20% afsláttur með kóða: SUS
Hotels in Reykjavik | Welcome to Center Hotels Iceland
Center Hotels Plaza er næst þingreitnum
Hilton: 20% afsláttur með kóða: WHPRO1