Þann 20. september næstkomandi verður árleg ráðstefna Alzheimersamtakanna haldin á Hótel Nordica. Að þessu sinni markar hún tímamót, því við fögnum jafnframt 40 ára afmæli okkar. Ráðstefnan er eins og endranær haldin í tengslum við alþjóðlegan dag Alzheimers og við erum búin að setja saman vandaða dagskrá.
FYRIRLESTRAR OG TÓNLIST 📖🎼
Á ráðstefnunni verða áhugaverð erindi en meðal gesta eru:
- Björn Skúlason, maki forseta Íslands og verndari Alzheimersamtakanna
- Alma D. Möller, landlæknir
- Jón Snædal, öldrunarlæknir, fer yfir söguna
- Steinunn Þórðardóttir, öldrunarlæknir og formaður Læknafélags Íslands, fjallar um áskoranir framtíðarinnar
Þá stígur Seiglukórinn einnig á stokk og flytur nokkur lög.
TAKTU DAGINN FRÁ ⏰
Ráðstefnan hefur undanfarin ár verið vel sótt af einstaklingum með heilabilun, aðstandendum, fagfólki og öðrum sem láta sig málefnið varða.
You may also like the following events from Alzheimersamtökin: