Verið hjartanlega velkomin á útgáfuhóf og opnun Dunce Magazine í Y gallery. Dunce kemur út í fjórða skipti í tengslum við Sequences Real-Time Art Festival. Útgáfu tímaritsins verður fagnað í Y gallery þar sem opnuð verður sýning á verkum eftir listamenn sem fram koma í blaðinu. Sérstakur kafli er unninn í samstarfi við Sequences og er tileinkaður þeim listamönnum sem halda gjörning á hátíðinni.
Dunce Magazine er sjálfútgefið tímarit undir ritstjórn danshöfundarins Sóleyjar Frostadóttur og hannað af Helgu Dögg Ólafsdóttur. Dunce liggur á mörkum myndlistar, dans- og gjörningalistar. Listamenn sem koma fram í blaðinu vinna með hugmyndir um líkamleika; jarðbundinn og dreymandi líkama. Blaðið er prentað af myndlistarmanninum Sigurði Atla Sigurðssyni í risograph, offset og silkiþrykki í takmörkuðu upplagi.
Listamenn sem koma fram í blaðinu:
Adrienne Herr, Alicia Luz Rodríguez, Carlo Canún, Felix Urbina Alejandre, Geirþrúður Finnbogadóttir Hjörvar, Halla Þórðardóttir & Saga Kjerúlf Sigurðardóttir, Helle Siljeholm, Hildur Elísa Jónsdóttir, Hugo Llanes, Lucky 3, Maija Mustonen & Hrefna Lind Lárusdóttir, Margrét Sara Guðjónsdóttir, Rósa Ómarsdóttir, Steina Vasulka.
____
Welcome to the publication launch and exhibition opening of Dunce Magazine at Y Gallery. Dunce is published for the fourth time in connection with the Sequences Real-Time Art Festival. The launch of the magazine will be celebrated at Y gallery, where an exhibition of works by artists featured in the magazine will be opened. A special section is dedicated to the artists performing at Sequences.
Dunce is a artist-run magazine edited by choreographer Sóley Frostadóttir and designed by Helga Dögg Ólafsdóttir. Dunce lies at the border of visual art, dance and performance art. Many of the artists featured in the fourth issue of Dunce explore the concept of embodiment while also leaving space for the disembodied act of dreaming. The magazine is printed by visual artist Sigurður Atli Sigurðsson in risograph, offset and silkscreen in a limited edition.
Artists presented in this issue:
Adrienne Herr, Alicia Luz Rodríguez, Carlo Canún, Felix Urbina Alejandre, Geirþrúður Finnbogadóttir Hjörvar, Halla Þórðardóttir & Saga Kjerúlf Sigurðardóttir, Helle Siljeholm, Hildur Elísa Jónsdóttir, Hugo Llanes, Lucky 3, Maija Mustonen & Hrefna Lind Lárusdóttir, Margrét Sara Guðjónsdóttir, Rósa Ómarsdóttir, Steina Vasulka.
Also check out other Arts events in Kopavogur, Festivals in Kopavogur, Exhibitions in Kopavogur.