Fossarnir í Þjórsá frá Búðarhálsi í Hvanngiljahöll, 17 June | Event in Kirkjubaejarklaustur | AllEvents

Fossarnir í Þjórsá frá Búðarhálsi í Hvanngiljahöll

Fjallgöngur.is & Toppfarar.is

Highlights

Tue, 17 Jun, 2025 at 07:00 am

Gljúfurleitarfoss

Advertisement

Date & Location

Tue, 17 Jun, 2025 at 07:00 am to 08:00 pm (GMT)

Gljúfurleitarfoss

Kirkjubaejarklaustur, Iceland

Save location for easier access

Only get lost while having fun, not on the road!

About the event

Fossarnir í Þjórsá frá Búðarhálsi í Hvanngiljahöll
Einstök ganga upp með Þjórsá frá Búðarhálsvirkjun upp á hálendið þar sem Þjórsáin er þrædd alla leið upp eftir frá Sultartangalóni og Gljúfurleitarfoss og Dynkur skoðaðir í návígi. Leggur 15 #ÞvertyfirÍsland

Mikilvægar tilkynningar:

*Fólksbílafært að Búðarhálsvirkjun en eingöngu jeppafært að Hvanngiljahöll og við erum háð því að það sé orðið bílfært þangað upp eftir um miðjan júní, vonum það besta og vöktum ástandið þegar nær dregur ferð.

*Ef jeppar fást ekki meðal þeirra sem mæta í þessa ferð (miðum við 2 jeppa á 10 manns miðað við mætingu í fyrri þverunarferðir og ef fleiri en 10 manns mæta, þá þarf fleiri jeppa) - þá reynum við að fá einhverja í kringum okkur til að skutlast eftir okkur síðdegis.

*Er að kanna með verð fyrir slíkan jeppaflutning hjá rútufyrirtæki en kostnaður fyrir slíkan flutning er alltaf hár.

*EF svo ólíklega vill til að fleiri en 25 manns vilja ganga þessa gönguleið, þá er orðið raunhæft að fá rútu til að keyra okkur og sækja frá Rvík og engin vandræði þá með jeppa, metum þetta úr frá áhuga á fb-viðburðinum og innan lokaða fb-hóps Toppfara. Verðið yrði þá samt alltaf líklega meira en 20þús á mann með rútunni.

*Gengið verður í fótspor "Mæðgna á fjöllum" síðari hluta leiðarinnar þar sem þær gengu ekki að Búðarhálsvirkjun á sinni leið en upplýsingar þeirra í samnefndum hóp á fb og liðlegheit þeirra almennt hafa gert og eru að gera okkur kleift að geta yfir höfuð komið þessu langtímaverkefni í verk.

*EF mjög fáir hafa áhuga á þessari gönguleið, þá ætlum við að breyta henni og vera nær þjóðveginum og þurfum þá ekki að fá jeppa né rútu og getum sjálf skutlast með bílana okkar milli upphafs - og endastaðar, en það þýðir að við upplifum ekki fossana í Þjórsá á þverunarleggnum sem er mun síðri kostur en ef fyrri áætlun næst.

*Ljósmynd ferðar er fengin af wikipediu á veraldarvefnum af fossinum Dynk í Þjórsá sem einn af nokkrum frægum fossum þessarar mögnuðu jökulár.


Verð:

Kr. 21.000 með rútu milli Hvanngiljahallar og Búðarhálss fyrir klúbbmeðlimi (eða kr. 7.000 án rútu og þá breytt leið og við ferjum bíla)

Kr. 24.000 með rútu skv. ofangreindu, fyrir gesti sem vilja prófa göngu með klúbbnum (eða kr. 9.800 án rútu og þá breytt leið og við ferjum bíla).


Greitt beint inn á reikning Toppfara ehf: 0114-26-58100. Kt: 581007-2210 eða með símgreiðslu á kreditkorti:

Örn í síma: 899-8185 og Bára í 867-4000 og tölvupóst orn-bokari(hjá)simnet.is eða baraket(hjá)simnet.is.


Mjög mikilvægt er að skrifa í skýringu hvaða ferð er verið að greiða, nóg að setja nokkra stafi í nafni fjallsins svo skiljist.


Skráning og skilmálar:

Skráning eingöngu gild með greiðslu. Þeir sem eiga inneign meldi það inn eða sendið okkur skilaboð / póst.


Ferð er ekki endurgreidd við afboðun ef uppselt er í ferðina og fólki var vísað frá sem vildi skrá sig eða ef fáir voru skráðir og ferð hefði verið aflýst vegna ónógrar þátttöku.

Allar upplýsingar um gönguna á viðburði á vefsíðu okkar hér:

https://www.fjallgongur.is/event-details/fossarnir-i-thjorsa-fra-budarhalsi-i-hvanngiljaholl


You may also like the following events from Fjallgöngur.is & Toppfarar.is:

interested
Stay in the loop for updates and never miss a thing. Are you interested?
Yes
No

Ticket Info

To stay informed about ticket information or to know if tickets are not required, click the 'Notify me' button below.

Advertisement

Nearby Hotels

Gljúfurleitarfoss, Kirkjubaejarklaustur, Iceland

Just a heads up!

We have gathered all the information for you in one convenient spot, but please keep in mind that these are subject to change. We do our best to keep everything updated, but something might be out of sync. For the latest updates, always check the official event details by clicking the "Find Tickets" button.

Get updates and reminders

Host Details

Fjallgöngur.is & Toppfarar.is

Fjallgöngur.is & Toppfarar.is

Are you the host? Claim Event

Advertisement
Fossarnir í Þjórsá frá Búðarhálsi í Hvanngiljahöll, 17 June | Event in Kirkjubaejarklaustur | AllEvents
Fossarnir í Þjórsá frá Búðarhálsi í Hvanngiljahöll
Tue, 17 Jun, 2025 at 07:00 am