(English below)
Ráðstefnan Tales of the Nature Spirits samanstendur af fyrirlestrardegi þann 31. maí í Menningarhúsinu Hofi á Akureyri og vinnustofu 1. júní í Sólborg, Háskólanum á Akureyri. Fjallað verður um óáþreifanlegan menningararf er snýr að náttúruvættum, út frá mörgum sjónarhornum s.s. listum, bókmenntum, skynjun og náttúruvernd. Markmið ráðstefnunnar er að auðga skilning okkar, þvert á þjóðerni og tungumál, á þessum áhugaverða menningararfi og um leið að skapa aukin og ný tækifæri á sviði samstarfs, rannsókna, ferðaþjónustu, menningar og lista.
Fyrirlestrardagurinn 31.maí fer fram á ensku. Húsið opnar kl. 9:00 og dagskrá hefst kl. 9:30. Fluttir verða átta fyrirlestrar og koma fyrirlesarar frá Íslandi, Bandaríkjunum, Englandi, Mongólíu, Kenýa, Danmörku og Tékklandi. Allir fyrirlesarar hafa á einhvern hátt unnið með eða rannsakað óáþreifanlegan menningararf og listamenn ráðstefnunnar eiga það sameiginlegt að vilja hafa áhrif á sérstöðu Íslands þegar kemur að söfnun og varðveislu heimilda um náttúruvætti þess og skynjun okkar á landinu sem hefur gefið okkur innblástur í listsköpun í gegnum aldirnar og gerir enn. Hægt er að kaupa streymi að fyrirlestrardeginum.
Á vinnustofu 1. júní kl. 10:30-12:30 verða tekin fyrir fjölbreytt umræðuefni í hátíðarsal Háskólans á Akureyri. Umræður fara fram á íslensku og ensku og munu fyrirlesarar leiða umræður og svara spurningum. Þar verða þátttakendur hvattir til að ræða málefnið, ræða hugmyndir og mögulegt samstarf m.a. um náttúruvernd og varðveislu heimilda er snúa að álfum, huldufólki og öðrum náttúruvættum. Gerð verður skýrsla byggð á niðurstöðum dagsins.
Sjá dagskrá og nánar um fyrirlestra undir umræða
Verð ráðstefnu 9.900 kr (sjá nánar í miðasölu)
Nánar má lesa um ráðstefnuna á vefsíðum Huldustíg og Huldu
https://www.huldustigur.is/tales-of-the-nature-spirits-2025.html https://hulda-setur.is/namskeid-og-radstefnur/
Miðasala:
https://www.mak.is/is/vidburdir/international-conference-tales-of-the-nature-spirits
Eftirfarandi aðilar styrkja ráðstefnuna: SSNE, Fjord og Akureyrarbær
The international conference “Tales of the Nature Spirits” will be held on May 31, 2025, at the Hof Cultural Center in Akureyri, and will be followed by a workshop on June 1, 2025, in Akureyri University's Sólborg Hall. The conference will be held in English. The goal is to enrich and deepen our understanding of the cultural heritage that entails Elves, Huldufolk, and other nature spirits. At the same time, it presents an opportunity to foster and inspire collaboration and research in tourism, art, and culture.
On May 31st, the conference will feature 8 lectures. The program begins at 9:30 am and concludes at 3:00 pm. The lecturers are from Iceland, the United States, England, Mongolia, Kenya, Denmark, and the Czech Republic. All the lecturers have, in different ways, worked with intangible cultural heritage.
The workshop is on June 1st, from 10:30 to 12:30, in the Sólborg festive hall of Akureyri University. Multiple issues will be discussed, and lecturers will lead discussions and conclusions.
More info:
https://www.huldustigur.is/tales-of-the-nature-spirits-2025.html
https://www.mak.is/is/vidburdir/international-conference-tales-of-the-nature-spirits
https://hulda-setur.is/namskeid-og-radstefnur/
Tickets - in person or live stream -
https://tix.is/is/mak/buyingflow/tickets/18800/
*The conference and workshop are sponsored by SSNE, The Fjord Loft and Akureyri Cultural Fund*
Also check out other Business events in Akureyri, Conferences in Akureyri, Workshops in Akureyri.