Ímyndið ykkur að þið sveiflist mjúklega í fallegu og róandi umhverfi umvafin heilandi litum og læknandi hljómum sem sameinast í dásamlegt andrúmsloft. Andrúmsloft sem veitir slökun og lækningu við bæði róandi faðmlag hengirúmanna sem og róandi titring gonga, kristalssöngskála, sjávarniðs, laglínu frumbyggjaflautu og trommusláttar.
Þessi einstaka meðferð skapar djúpa og afslappandi upplifun fyrir bæði líkama og huga.
Hentar einstaklingum, pörum, vinum og vinkonum sem náð hafa 18 ára aldri.
Hljóðheilun er einstaklega góð fyrir þá sem vilja ná djúpri slökun í kyrrð og ró. Eins styrkir hljóðheilun taugakerfið, hefur góð áhrif á blóðrásina og bætir svefn svo fátt eitt sé nefnt.
Hengirúmin eru örugg og örlítið eftirgefanleg og þola mikla þyngd eða rúm 400 kg.
ATHUGIÐ!
Það þarf að skrá sig með því að setja "going" á viðburð, eins óska ég eftir skilaboði um skráningu til Líkama Sálar.
ATHUGIÐ !
Hljóðheilun er ekki æskileg þeim sem gengist hafa undir gangráðsígræðslu.
Nauðsynlegt að vera í hlýjum og þægilegum klæðnaði og góðum sokkum.
Teppi, koddar og augnhulur eru á staðnum fyrir þá sem vilja hafa það extra kósý.
Tíminn stendur yfir í 60 mínútur.
Verð aðeins 5.500 krónur.
Viðburðurinn er haldinn á Akureyri að Súluvegi 2.
Ég hlakka til að taka á móti ykkur,
Harpa Dowan Howee Sýna