Gönguvika: Miðnæturganga í Mývatnssveit á lengsta degi ársins
Stóragjá - Grjótagjá - Hverfjall - Dimmuborgir (2 skór)
Brottför kl. 19 á einkabílum frá FFA, Strandgötu 23.
Safnast saman í bíla ef vill.
Fararstjórn: Ingibjörg Elín Jónasdóttir
Það getur verið ævintýri líkast að ganga í Mývatnssveitinni seint að kvöldi og því ætlar FFA að bjóða upp á eina slíka ferð.
Gangan hefst við Reykjahlíð í Mývatnssveit. Gengið eftir slóðum og stígum að mestu í hrauni en á köflum eru þeir grófir og ójafnir.
Fararstjóri mun segja frá og vera með fræðslu um jarðfræði og fleira á svæðinu eftir því sem aðstæður leyfa.
Gengið þægilegan stíg upp á Hverfjall og eftir brúninni að suðurhlið gígsins og þar niður brattan stíg með lausum sandi og svo eftir stíg um hraunið inn í Dimmuborgir. Ef einhverjir þátttakendur vilja ekki fara upp á Hverfjall þá er greiðfær gönguleið meðfram fjallinu þar sem hægt er að hitta hópinn þegar hann kemur niður af fjallinu. Vegalengd: 10 km. Gönguhækkun: 150 m á Hverfjall. Gott getur verið að hafa göngustafi og vera í góðum skóm. Selflytja þarf bíla.
Vegalengd: 10 km. Gönguhækkun: 150 m á Hverfjall.
Gert er ráð fyrir að koma til baka eftir miðnætti.
Verð: 2.700 / 4.400 kr. Innifalið: Fararstjórn
Greitt er fyrir þessa ferð við brottför.
Skráning á ffa.is
You may also like the following events from Ferðafélag Akureyrar FFA: