Hjóna- og paramót Blush open 2025 fer fram dagana 18 - 19. Júlí.
Leikfyrirkomulag:
Leiknar verða 36 holur með leikfyrirkomulaginu Betri bolti (fjórleikur) og fjórmenningur (Greensome).
Veglegir gjafapakkar frá Blush í verðlaun. Mótinu lýkur með matarveislu og verðlaunaafhendingu í Golfskála Golfklúbbs Húsavíkur.
Nándarverðlaun á par 3 brautum vallarins báða dagana (2 og 4 hola). Þar sem völlurinn er 9 holur fá allir tvö tækifæri sitt hvorn daginn! Verðlaunin eru gjafapakki frá Blush.
Best klæddi karlinn, best klædda konan á laugardeginum.
Verðlaun eru gjafapakki frá Blush.
Teiggjafir fyrir alla.
Nánari upplýsingar um mótið er að sjá inn á golfboxinu.
Heimasíða GH
https://www.ghgolf.is/
Facebooksíða GH
https://www.facebook.com/ghgolf.is
Skráning :
Senda þarf tölvupóst á
bWVkZGloIHwgZ21haWwgISBjb20= með nöfnum keppenda, kennitölu og aðildarnúmeri.
Gott að láta fylgja með óskir með hverjum þið viljið spila fyrri daginn. Reynt verður að taka tillit til þess. Þátttökugjald er 48.000.- kr fyrir parið.
Innifalið er mótsgjald tveggja daga móts, vegleg teiggjöf, aðgangur í Sjóböðin, kvöldverður á lokahófi á laugardagskvöldinu.
Boðið er upp á upphitunarhring 17. júlí eftir kl. 12:30 og þarf fólk að skrá sig á golfbox.
Gleðin er besta víman, hlökkum til að sjá ykkur!
You may also like the following events from Golfklúbbur Húsavíkur: