Föstudaginn 27. júní klukkan 12:00, opnar listakonan Aðalheiður Sigríður Eysteinsdóttir sýninguna: Um hádegisbil, og hefst opnunin formlega með þátttökugjörningi í hádeginu.
Sýningin er opin föstudag til sunnudags frá kl. 12.00 - 17.00
Um hádegisbil
Undanfarin ár hef ég velt fyrir mér hvaða áhrif hugsun, matur og hreyfing hefur á tilveru hvers einstaklings. Okkur er uppálagt að lifa heilbrigðu lífi, borða hollt, hreyfa okkur og hugsa jákvætt. Öll glímum við þó við allskonar, hvort sem er andlegt eða
líkamlegt, nú eða utanaðkomandi aðstæður sem við ráðum ekki við. En grunn atriði er þó að nærast.
Allt frá ákvarðanatöku um matseld, athöfnina að borða, meltinguna og að lokum losun líkamans, er hugur okkar og líkami að gera sig kláran fyrir næringu. Sagt er að meltingin hefjist um leið og við sjáum matinn á disknum og skipta þar litir, samsetning og framsetning miklu máli, jafnvel svo að matargerð er talin listform. En hversdagsleiki hvers og eins snýst oftast um að elda og borða einfalda eða fljótgerða rétti. Sum okkar hafa val um hverslags mat við borðum, önnur hafa ekkert val, og enn önnur þurfa að taka tillit til ofnæmis eða sjúkdóma.
Það er merkilegt hvernig matarræði getur haldið niðri einkennum sjúkdóma og hversu mikil áhrif það hefur á daglega líðan og jafnvægið í líkamanum. Einnig greinum við á hægðum hvernig líkaminn hefur unnið úr matnum.
Fyrr á öldum var all vanalegt að skoða hægðir í salerni til að greina heilbrigði einstaklinga og salerni sérhönnuð með sillu til að auðvelda slíkt. Nú til dags viljum við helst ekki vita né sjá. Allur úrgangur frá líkama okkar telst ógeðfelldur og ekki til skoðunar nema um ungabörn sé að ræða.
Eftir mikla sjálfskoðun, bæði andlega og líkamlega ákvað ég að gera rannsóknarverkefni um stöðu mína um hádegisbil í 30 daga. Ég glími við sjúkdóm sem krefst þess að ég borði eða borði ekki ákveðna fæðu. Einnig hef ég mikinn áhuga á eldamennsku og að raða fallega á diskinn minn, og hef gert marga gjörninga í gegnum tíðina sem einmitt snúast um næringu. En ég þarf líka að fylgjast með hvaða áhrif maturinn hefur á líðan mína og hvernig hann skilar sér daginn eftir í salernið. Ég tók því myndir af hádegisverði mínum og um það bil 24 tímum síðar af hægðum á tímabilinu 14. febrúar til 15. mars 2025.
Alls eru þetta sextíu myndir sem ég ákvað að útfæra með blíantsteikningum og ramma inn í hvíta
ramma sem tákn fyrir matardiskinn annarsvegar og salernið hinsvegar.
Á sýningaropnun í Kaktus 27. júní klukkan 12.00 verður þátttökugjörningur þar sem gestum verður boðið að raða saman hádegisverði á disk og taka mynd og síðan borða.
Allir eru hjartanlega velkomnir að upplifa og sjá og borða :)