Akureyrarhlaup Mizuno og atNorth
Akureyrarhlaup hefur verið árviss viðburður í Íþróttalífi Akureyringa frá 1992.
Hlaupið er styrkt af Akureyrarbæ, Heilsueflandi samfélagi, Mizuno og atNorth.
Hlaup fyrir alla, unga sem aldna, byrjendur og lengra komna!
Boðið er upp á þrjár vegalengdir 5 km, 10 km og hálfmaraþon. Keppni í hálfmaraþoni er jafnframt Íslandsmeistaramót í greininni. Þar er keppt um Íslandsmeistaratitla í hálfmaraþoni karla og kvenna og einnig um Íslandsmeistara í aldursflokkum.
Rás- og endamark er við menningarhúsið Hof og er hlaupið um eyrina og meðfram ströndinni í átt að flugvellinum svo hlaupaleiðin er marflöt og vænleg til góðra afreka.
Skráning fer fram á netskraning.is og einnig verður hægt að skrá sig í World Class á keppnisdag milli kl. 17.00 og 18.30 en þá eru öll keppnisgjöld 1000 kr dýrari.
5 km hlaup kr. 2.500 í forskráningu, kr. 3.500 á keppnisdag
10 km hlaup kr. 3.500, kr. 4.500 á keppnisdag
Hálfmaraþon kr. 5.500, kr. 6.500 á keppnisdag.
18 ára og yngri greiða aðeins 1500 kr. í allar vegalengdir í forskráningu en kr. 2.500 á keppnisdag.
Dagskrá á hlaupadag
16.00-19.00 Afhending keppnisgagna í World Class við Strandgötu.
19.00 Fyrri ræsing í hálfmaraþoni, hlauparar sem reikna með að vera lengur en 1:50:00 að hlaupa
19.30 Seinni ræsing í hálfmaraþoni, hlauparar sem reikna með að vera fljótari en 1:50:00 að hlaupa
20.05 Ræsing í 5 og 10 km hlaupi
20.20-22.00 Hlauparar koma í mark. Veitingar í boði á marksvæði. Hægt að fara í sturtu í Word Class
22.00 Tímatöku lýkur
21.30-22.00 Verðlaunaafhending í World Class
Tímataka og úrslit
http://xn--tmataka-7ya.is/ mun annast tímatöku í hlaupinu. Keppendur fá afhent hlaupanúmer sem þeir þurfa að hafa sýnilegt að framan, fyrir ofan mittishæð allt hlaupið. Í númerinu er tímatökuflaga sem skannast þegar hlaupið er yfir tímatökumottur í byrjun og lok hlaupsins. Mikilvægt er að bera hendurnar ekki fyrir flöguna þegar hlaupið er yfir mottuna því það getur komið í veg fyrir að flagan skannist. Bíðið því með að stoppa klukkuna ykkar þar til þið hafið hlaupið yfir mottuna.
Úrslit verða birt á vefnum timataka.is strax að loknu hlaupi og síðar á hlaup.is og í afrekaskrá FRÍ.
Also check out other Workshops in Akureyri.