XIV. Umhverfisþing 15.-16. september, 15 September | Event in Reykjavík | AllEvents

XIV. Umhverfisþing 15.-16. september

Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið

Highlights

Mon, 15 Sep, 2025 at 01:00 pm

Harpa tónlistar- og ráðstefnuhús / Harpa Concert Hall and Conference Centre

Advertisement

Date & Location

Mon, 15 Sep, 2025 at 01:00 pm (GMT)

Harpa tónlistar- og ráðstefnuhús / Harpa Concert Hall and Conference Centre

Austurbakki 2, 101 Reykjavíkurborg, Ísland, Reykjavík, Iceland

Save location for easier access

Only get lost while having fun, not on the road!

About the event

XIV. Umhverfisþing 15.-16. september
XIV. Umhverfisþing verður haldið dagana 15. og 16. september í Silfurbergi í Hörpu. Meginþemu þingsins verða hafið, líffræðileg fjölbreytni og loftslagsmál.
Skráning þátttöku: https://forms.office.com/e/WHUAq2h1Dh

Með þinginu vill Jóhann Páll Jóhannsson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, efla hlustun og samtal við almenning, félagasamtök og hagaðila um umhverfismál, með áherslu á framangreind þemu. Umhverfisþingi er ætlað að ná fram uppbyggilegu samtali um viðfangsefni þingsins og skapa grundvöll að framhaldsvinnu stjórnvalda í málaflokkunum. Dagskráin verður því ýmist í formi vinnustofa, fyrirlestra og pallborðsumræðna.

Drög að dagskrá
15. september kl. 13-16

Jóhann Páll Jóhannsson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, setur þingið.

Thomas Halliday, fornlíffræðingur og höfundur bókarinnar Otherlands: A World in the Making.

Samtal við Höllu Tómasdóttur, forseta Íslands, um mikilvægi umhverfis- og loftslagsmála.

Afhending náttúruverndarviðurkenningar Sigríðar í Brattholti

Áhrifamáttur samtals – Hvernig eflum við samráð og samtal um loftslagsmál? Vinnustofa skipulögð af loftslagsktívistum.

16. september kl. 9:00 – 16:30.

Ocean – sýning á 20 mínútna útgáfu af myndinni Ocean með David Attenborough

Pallborð 1: Lífríki hafsins og vernd hafsvæða - pallborðsumræður um tengsl verndunar hafsvæða við þróun lífríki hafsins og auðlindir þess.

Pallborð 2: Skyldan til að vernda hafið - pallborðsumræður um framkvæmd hafverndar, árangursríka umhverfisvernd í hafi og lagalega þróun á því sviði.

Hádegishlé

Vinnustofa 1. Verndum líffræðilega fjölbreytni - hringborðsumræður um stefnu stjórnvalda um líffræðilega fjölbreytni og aðgerðaáætlun í málaflokknum.

Vinnustofa 2: Fyrsta loftslagsstefna Íslands - hringborðsumræður til að undirbyggja efnistök fyrstu loftslagsstefnu Íslands.

Jóhann Páll Jóhannsson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra lokar þinginu.

Meðal annarra þátttakenda í þinginu eru:

Dr. Chris McOwen, sjávarlíffræðingur hjá Umhverfisstofnun Sameinuðu þjóðanna (UNEP).
Dr. Anna von Rebay, málsvari og lagalegur ráðgjafi og forstjóri og stofnandi Ocean Vision Legal.
Dr. Sian Prior, sjávarlíffræðingur. Prior hefur starfað fyrir og veitt ráðgjöf til fjölda umhverfisverndar- og hafverndarhópa, m.a. Clean Arctic Alliance.
Rui Martins, héraðsstjóri hafmála á Azoreyjum (Regional Director for Ocean Affairs).
Dr. Guðbjörg Ásta Ólafsdóttir forstöðumaður rannsóknarseturs Háskóla Íslands á Vestfjörðum.
Dr. Snorri Sigurðsson, líffræðingur og sviðsstjóri náttúruverndar, Náttúrufræðistofnun.
Björn Helgi Barkarson, umhverfisfræðingur og skrifstofustjóri umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytinu.
Dr. Snjólaug Árnadóttir, dósent og doktor í hafrétti við Háskólann í Reykjavík.

Öll eru velkomin, en skrá þarf þátttöku í þinginu fyrirfram. Hlutar dagskrár verða einnig aðgengilegir í beinu streymi. Athygli er vakin á að skrá þarf sérstaklega þátttöku í pallborðsumræðum og hverri vinnustofu fyrir sig.

interested
Stay in the loop for updates and never miss a thing. Are you interested?
Yes
No

Ticket Info

To stay informed about ticket information or to know if tickets are not required, click the 'Notify me' button below.

Advertisement

Nearby Hotels

Harpa tónlistar- og ráðstefnuhús / Harpa Concert Hall and Conference Centre, Austurbakki 2, 101 Reykjavíkurborg, Ísland, Reykjavík, Iceland
Get updates and reminders

Host Details

Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið

Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið

Are you the host? Claim Event

Advertisement
XIV. Umhverfisþing 15.-16. september, 15 September | Event in Reykjavík | AllEvents
XIV. Umhverfisþing 15.-16. september
Mon, 15 Sep, 2025 at 01:00 pm