Að mæta sér með mildi
4 vikna umbreytandi námskeið.
Byrjar 6. Október
Mánudaga 19:30 -21:30
Verð 34.900,-
Við bjóðum þér í ferðalag þar sem líkami, hugur og sál fá næringu og hvíld.
Námskeiðið fer fram einu sinni í viku, í 2 klukkustundir í senn, þar sem við blöndum saman kraftmiklum aðferðum sem styðja hvort annað og skapa heildræna upplifun.
Við byrjum hvern tíma á að njóta Cacao, sem opnar hjartað, tengir okkur inn á við og styrkir samhljóm hópsins.
Í framhaldinu vinnum við með mismunandi aðferðir – stundum tvær saman, stundum eina í einu – allt eftir því hvað þjónar hópnum best.
Þú færð að upplifa m.a.:
Yin Yoga – djúp slökun sem róar taugakerfið og losar spennu úr líkama og huga.
Bandvefslosun – Body Reroll – mjúkar nuddboltameðferðir sem mýkja bandvef, draga úr spennu og endurnýja orkuna.
9D Breathwork – umbreytandi öndunarferðalag sem leiðir þig inn í undirmeðvitundina, hjálpar við að losa tilfinningalegar byrðar og kveikir innri kraft.
Tónheilun – djúpt róandi hljóðbylgjur sem jafna orkuna, styðja endurheimt og leiða þig í innri frið.
Við endum alla tíma á Tónheilun, svo líkaminn og taugakerfið geti tekið á móti ró og jafnvægi áður en þú ferð út í daginn þinn.
Þetta er einstakt námskeið fyrir þig sem vilt losa spennu, næra líkama og sál og kveikja á vellíðan, jafnvægi og innri styrk.
Leiðbeinendur: Lovísa & Sara María
Also check out other Health & Wellness events in Reykjavík.