Þá er komið að því!
Hið árlega þorrablót Íslendingafélagsins í Osló verður haldið í Sagene Festivitetshus laugardaginn 24 janúar.
Húsið opnar klukkan 17:00. Borðhald hefst kl 18:00. Veislustjórar í ár verða aftur þeir einu og sönnu Pétur & Hörður.
Boðið verður uppá: Hákarl, brennivín, harðfisk, hangikjöt, slátur, saltkjöt, kartöflur, jafning, rófustöppu, hrútspunga, sviðakjamma og margt fleira!
Eftir að skipulagðri dagskrá og borðhaldi lýkur um kl 21:00 hefst ballið og munu Bandmenn halda uppi fjörinu fram að miðnætti!
Almenn miðasala hefst 1.desember
Miðaverð
Félagsmenn - 850 kr Matur&Ball
Utan félags - 1050 kr Matur&Ball
Félagsmenn íslendingafélagsins í Osló og nágrenni eru þeir sem hafa skráð sig í félagið og greitt hin árlegu félagsgjöld (maí 2025- maí 2026)
Hægt er að gerast félagsmaður með því að skrá sig hér og borga með Vipps:
https://www.islendingafelagid.no/skr%C3%A1ning
Ef þú ert ekki viss um hvort þú sért félagsmaður geturu sent okkur tölvupóst á
aXNpb3NsbyB8IGdtYWlsICEgY29t
Íslendingafélagið áskilur sér réttindin á því að ógilda miða sem keyptir eru á fölskum forsendum
Allar upplýsingar um þorrablótið verða birtar á heimasíðu félagsins
http://islendingafelagid.no og að auki á facebook síðu félagsins.
https://www.facebook.com/islendingafelagid/