Tónlistarmaðurinn og ólympíufarinn Már heldur tónleika í Salnum Kópavogi og Hljómahöll Reykjanesbæ ásamt 30 manna stórhljómsveit frá Manchester.
Öllu verður til tjaldað en hljómsveitina skipar glæsilegt hrynband, 12 manna strengjasveit, tré og málmblásturshljóðfæri, slagverk og söngvarar.
Á tónleikunum fá áhorfendur að heyra tónlist Más í bland við sígilda slagara í nýjum sinfónískum útsetningum.
Heiðursgestur sýningarinnar verður hinn víðfrægi enski söngvari Wayne Ellington.
Í nóvember 2024 hélt Már sína fyrstu tónleika ásamt RNCM session Orchestra við frábærar undirtektir. Í framhaldi hefur hann komið fram með sveitinni á fjölda viðburða í Englandi; má þar helst nefna tvenna uppselda tónleika í Manchester, og framkomu á tónlistarhátíðinni Candle Calling.
Ætlunin er að gera enn betur á Íslandi í nóvember, mikið er lagt í tónleikana sem verða stærri og veglegri en nokkru sinni fyrr.
Enski söngvarinn Wayne Ellington sem sló svo eftirminnilega í gegn í The Voice Uk verður sérstakur heiðurssöngvari tónleikanna í ár. Wayne hefur snert hjörtu milljóna manna um heim allan með söng sínum, en þetta verður í fyrsta sinn sem hann kemur fram á Íslandi. Hann hefur deilt sviði með hljómsveitinni Blur og sungið í brúðkaupi Prince Harry og Meghan Markle svo eitthvað sé nefnt.
Styrktaraðilar tónleikanna eru: uppbyggingarsjóður Suðurnesja, Courtyard by Marriott Reykjavík Keflavík Airport, K. Steinarsson, menningarsjóður Reykjanesbæjar, Skólamatur, Langbest, Rétturinn, Bus4U, Kökulist, Reykjanesapótek og Sporthúsið Reykjanesbæ.
You may also like the following events from Salurinn Tónlistarhús:
Also check out other
Music events in Kopavogur,
Entertainment events in Kopavogur.