Söngleikjakórinn Viðlag syngur inn jólin með miklum tilþrifum! Viðlag hefur getið sér gott orð fyrir kraftmikinn söng og líflegar sviðsetningar. Kórinn velur sín uppáhaldssöngleikjalög og semur við þau texta sem lýsa íslenskum raunveruleika a aðventunni, með öllu því sem þessa árstíð; jólabókaflóði, gjafainnkaupum, jólasveinaheimsóknum og amstrinu sem fylgir undirbúningi jólanna.