Prjónahelgi á Fisherman hótel Suðureyri, gisting, matur, samvera, slökun og prjón!
Með okkur verður sjúkraþjálfari sem minnir okkur á rétta líkamsstöðu og á dagskrá eru léttir göngutúrar, sund og gleðistundir. Þá fáum við hönnuði og hagleiksfólk til okkar með popup kynningar á garni og prjónum.
Nánari upplýsingar í síma 861-5649 (Sigga Júlla).
Skráning á netfangið
dGhvcmR1ciB8IGZpc2hlcm1hbiAhIGlz
Hlökkum til að sjá sem flest!
Kynning á fólkinu á bak við prjónahelgina:
Sigga Júlla sér um skipulagningu, hún sér til þess að öllum líði vel, afgreiðir drykki, passar uppá að nóg sé til af öllu, leiðsegir í gönguferðum, prjónar og skemmtir sér með ykkur.
Guðlaug Svala er hönnuður og sjúkraþjálfari, mun ausa úr sínum viskubrunni. Hún mun sjá um morgunleikfimi og sundleikfimi auk þess að prjóna og skemmta sér með ykkur.
Dúi, maðurinn henna Siggu Júllu, mun sjá til þess að enginn svelti þessa helgi og verður því að mestu í eldhúsinu, auk þess að bregða sér í hlutverk barþjóns inná milli og hver veit nema hann verði með sögustund.
Þórður Logi er sonur Siggu Júllu, hann heldur utan um bókanir og sér til þess að allir fái herbergi við hæfi, afgreiðir drykki á barnum og aðstoðar við matseld.