Hjörtur Matthías Skúlason: Gras - Any of Many  4. - 28.9 2025, 4 September | Event in Ísafjörður | AllEvents

Hjörtur Matthías Skúlason: Gras - Any of Many 4. - 28.9 2025

Gallerí Úthverfa / Outvert Art Space

Highlights

Thu, 04 Sep, 2025 at 04:00 pm

Gallerí Úthverfa / Outvert Art Space

Advertisement

Date & Location

Thu, 04 Sep, 2025 at 04:00 pm (GMT)

Gallerí Úthverfa / Outvert Art Space

Aðalstræti 22, 400 Ísafjarðarbær, Ísland, Ísafjörður, Iceland

Save location for easier access

Only get lost while having fun, not on the road!

About the event

Hjörtur Matthías Skúlason: Gras - Any of Many 4. - 28.9 2025
Hjörtur Matthías Skúlason:
Gras – Any of Many
4.9 – 28.9 2025

Fimmtudaginn 4. september kl. 16 opnar sýning Hjartar Matthíasar Skúlasonar Gras – Any of Many í Gallerí Úthverfu. Listamaðurinn verður viðstaddur opnunina og boðið verður uppá léttar veitingar og spjall.

Sýningin Gras - Any of Many býður gestum að kanna þemu sem varpa ljósi á tilveru grasstráa. Hjörtur dregur fram á óhefðbundin hátt myndir af stráum við mismunandi birtuskilyrði og sýnir þau í nýju og einstöku ljósi.

Í huga Hjartar lýsir hver mynd ákveðinni stemningu og stund í tilvist stráa með skírskotun til manneskjunnar. Til að mynda eru strá sem bærast í vindi og teygja sig til himins, hópur fólks með hendur á lofti að fagna. Mörg grasstrá saman - en samt í sundur.

Stráin í verkum Hjartar eru hógvær, næm og brothætt en samt sterk og lifandi. Áreynslulaus áferð og litasamsetning verkanna er afrakstur margra ára æfinga og stúdíu en Hjörtur hélt fyrstu málverkasýningu sína aðeins sautján ára gamall.

Hjörtur ólst upp við það að aðstoða foreldra sína, unga bændur á Vestfjörðum, að búa til ný tún í óspilltri náttúru. Blóðbergið var rifið upp með rótum til að sá nýjum fræjum - grasfræjum sem áttu að mynda tún - en kannski áttu þau heima annars staðar.

Viðfangsefnið endurtekur sig en litasamsetning og áferð breytist. Verk sýningarinnar eru sett upp á þann hátt að þau fljóta saman í eina heild – og mynda samfellu líkt og á filmu - ef áhorfandinn pírir augun kemur hreyfing á myndirnar og litirnir renna saman.

Sýningarstjóri er Hrafnhildur Gissurardóttir.
aHJhZm5oaWxkdXJzdGVyIHwgZ21haWwgISBjb20= – sími: 761 1099

Hjörtur Matthías Skúlason er fæddur á Patreksfirði 1979 og ólst upp á Rauðasandi í Vesturbyggð. Hann lauk fornámi við Myndlistarskólann í Reykjavík áður en hann hóf nám í Listaháskóla Íslands og útskrifaðist þaðan 2013 með BA gráðu í vöruhönnun. Sérkenni Hjartar síðastliðin ár eru manngerðir skúlptúrar hans, handsaumaðar dúkkur sem minna okkur á hlutskipti mannsins og tengsl við náttúruna.

Ljósmyndir: Valgarður Gíslason

₪₪₪


Í ár fagna Slunkaríki og Úthverfa 40 árum af samtímalist í sýningarrýminu Aðalstræti 22 á Ísafirði. Fyrsta sýningin var opnuð 1. mars 1985 með verkum Ingólfs Arnarsonar.


Starfsemi Úthverfu nýtur styrkja fyrir einstök verkefni frá Myndlistarsjóði, Orkubúi Vestfjarða, Skógi ehf, Uppbyggingarsjóði Vestjfarða og Ísafjarðarbæ.

Gallerí Úthverfa / Outvert Art Space
Aðalstræti 22 400 Ísafjörður
Z2FsbGVyeW91dHZlcnQgfCBnbWFpbCAhIGNvbQ==
+354 868 1845
www.kolsalt.is


Also check out other Arts events in Ísafjörður.

interested
Stay in the loop for updates and never miss a thing. Are you interested?
Yes
No

Ticket Info

To stay informed about ticket information or to know if tickets are not required, click the 'Notify me' button below.

Advertisement

Nearby Hotels

Gallerí Úthverfa / Outvert Art Space, Aðalstræti 22, 400 Ísafjarðarbær, Ísland, Ísafjörður, Iceland
Get updates and reminders

Host Details

Gallerí Úthverfa / Outvert Art Space

Gallerí Úthverfa / Outvert Art Space

Are you the host? Claim Event

Advertisement
Hjörtur Matthías Skúlason: Gras - Any of Many  4. - 28.9 2025, 4 September | Event in Ísafjörður | AllEvents
Hjörtur Matthías Skúlason: Gras - Any of Many 4. - 28.9 2025
Thu, 04 Sep, 2025 at 04:00 pm