

# Event Details

- **Event Name**: Kyrrðardagar í Skálholti 21. - 23. nóvember 2025
- **Event Start and End Date**: Fri, 21 Nov, 2025 at 04:00 pm
- **Event Description**: Kyrrðardagar í Skálholti – næring fyrir sál, anda og líkama
21.–23. nóvember 2025

NAUÐSYNLEGT ER AÐ SKRÁ SIG Á VIÐBURÐINN MEÐ ÞVÍ AÐ SENDA TÖLVUPÓST Á: skalholt@skalholt.is

Gefðu þér helgi þar sem kyrrð, hvíld og slökun eru í forgrunni.
Friðsælt og fallegt umhverfi Skálholts býður upp á kyrrð og næringu fyrir sál, anda og líkama.

Segðu þig frá álaginu og róaðu hugann. Njóttu nærveru Guðs í kyrrð og þögn á helgum stað.

Dagskráin byggir á mjúkum bænavenjum kristinnar íhugunar, stuttum innleiðingum, hreinu matarræði og þögn umvafin kyrrð og fegurð náttúrunnar.

Kyrrðardagarnir eru fyrir þig sem þráir kyrrð og ró frá amstri hversdagsins. Engin reynsla af kyrrðarbæn er nauðsynleg – allt er leitt af nærgætni og einfaldleika.

Leiðbeinendur: Kristján Björnsson, vígslubiskup í Skálholti, og sr. Kristín Þórunn Tómasdóttir, sóknarprestur í Skálholti.

Kærleiksregla kyrrðardaga
Við mætum sjálfum okkur og öðrum með mildum huga, virðum þögn og hvíld, einföldum það sem hægt er að einfalda og leyfum náttúru og helgi Skálholts að vinna sitt heilandi verk.

Þú mátt búast við:
• Róandi ramma þar sem þögn er gjöf, ekki krafa
• Kyrrðarbæn með stuttum íhugunarefnum
• Hreinu og einföldu matarræði sem er neytt að mestu í þögn
• Náttúrugönguferðum um Skálholtstungu, þar sem þú gengur í kyrrð eftir eigin getu
• Algerri hvíld frá skjám og símum
• Andlegri leiðsögn og einstaklingsviðtölum á tilteknum tímum
• Bænastundum í Skálholtsdómkirkju með kertaljósi og rólegum sálmafarsi

Dagskrá
Föstudagur 21. nóvember
16:00–18:00 Innritun. Boðið upp á te í ró og næði.
18:00 Léttur kvöldverður
19:00 Kynning á dagskrá helgarinnar. Gengið inn í þögnina
20:00 Kyrrðarbæn – mild innleiðing.
21:00 Hvíld og þögn.

Laugardagur 22. nóvember
07:00 Vaknað við söng
08:00 Morgunverður (í þögn)
9:00 Morgunbænir í Skálholtsdómkirkju
10:00 Íhuganir
12:00 Hádegisverður
13:00 Náttúruganga í þögn / íhugun í náttúru.
14:00–15:30 Kyrrðarrými & hvíld: dagbókarskrif, hvíld, kapella opin; einstaklingsviðtöl (tímapantanir á staðnum).
15:30 Te & róleg næring.
16:00 Kyrrðarbæn – að dvelja í þögninni.
17:00 Innleiðing: „Að leggja frá sér væntingar“ (stutt innleiðing, þögn að meginreglu).
18:00 Kvöldverður (í þögn).
19:30 Kvöldorð: Hvíld, kyrrð og aðventa.
21:00 Hvíld og þögn.

Sunnudagur 23. nóvember
07:00 Vaknað við söng
08:00 Morgunverður (í þögn)
09:00 Kyrrðarbæn & þakkarstund – þögn rofin smám saman.
10:00 Kaffi & létt deiling (valkvætt; örhópar).
11.00 Messa í Skálholtsdómkirkju
12:00 Léttur hádegisverður.
13:00 Lokaorð og blessun.
14:00 Brottför.

Hagnýtar upplýsingar
Gisting og matur
Gist er í Skálholti í einstaklings eða tvímennings herbergjum með sameiginlegum baðherbergjum (rúmföt & handklæði innifalin)
Gistirýmin eru algerlega laus við skjái
Máltíðir eru einfaldar með nærandi hreinu fæði
Látið vita með séróskir eða ofnæmi með fyrirvara.

Hvað á að taka með?
• Þægilegan innifatnað
• Inniskó
• Hlý föt til útiveru
• Útivistarfatnað
• Gönguskó,
• Vatnsbrúsa.
• Dagbók og penna.
• Skjal, teppi eða peysu fyrir íhuganir

Verð & skráning:

Einstaklingsherbergi 59.000 kr
Tvímenningsherbergi 49.000 kr

Miðað við lágmarksfjölda 10 manns

Innifalið: Dvöl, gisting, allar máltíðir, dagskrá og leiðsögn.
Ekki innifalið: Ferðir til/ frá Skálholti.

Margir starfsmenntunarsjóðir styrkja námskeiðið.

Hægt er að skrá ósk um að fá styrk til niðurgreiðslu í Skálholti.

Skráningu lýkur 20. október

Skráning og nánari upplýsingar: skalholt@skalholt.is
Leiðbeinendur:

Sr. Kristján Björnsson, vígslubiskup í Skálholti – leiðir kyrrðarbæn, bænastundir og íhugun.

Sr. Kristín Þórunn Tómasdóttir, sóknarprestur í Skálholti –kvöldorð og einstaklingsviðtöl.

*Athugið að dagskrá getur tekið breytingum
- **Event URL**: https://allevents.in/selfoss/kyrrðardagar-í-skálholti-21-23-nóvember-2025/200028989036138
- **Event Categories**: 
- **Interested Audience**: 
  - total_interested_count: 95

## Ticket Details


## Event venue details

- **city**: Selfoss
- **state**: AR
- **country**: Iceland
- **location**: Skálholt, 806 Selfoss, Iceland
- **lat**: 64.12732
- **long**: -20.528
- **full address**: Skálholt, 806 Selfoss, Iceland, Selfoss, Iceland

## Event gallery

- **Alt text**: Kyrrðardagar í Skálholti 21. - 23. nóvember 2025
  - **Image URL**: https://cdn-az.allevents.in/events4/banners/a07c84bf414e0a326a062ad42bb56b2e7b3cef5d52d0d7987f13d2aea0619fc5-rimg-w1200-h675-dc171815-gmir?v=1760349080

## FAQs

- **Q**: When and where is Kyrrðardagar i Skalholti 21. - 23. november 2025 being held?
  - **A:** Kyrrðardagar i Skalholti 21. - 23. november 2025 takes place on Fri, 21 Nov, 2025 at 04:00 pm to Fri, 21 Nov, 2025 at 04:00 pm at Skalholt, 806 Selfoss, Iceland, Selfoss, Iceland.
- **Q**: Who is organizing Kyrrðardagar i Skalholti 21. - 23. november 2025?
  - **A:** Kyrrðardagar i Skalholti 21. - 23. november 2025 is organized by Skalholt.

## Structured Data (JSON-LD)

```json
[
    {
        "@context": "https://schema.org",
        "@type": "Event",
        "name": "Kyrrðardagar í Skálholti 21. - 23. nóvember 2025",
        "image": "https://cdn-az.allevents.in/events4/banners/a07c84bf414e0a326a062ad42bb56b2e7b3cef5d52d0d7987f13d2aea0619fc5-rimg-w1200-h675-dc171815-gmir?v=1760349080",
        "startDate": "2025-11-21",
        "url": "https://allevents.in/selfoss/kyrrðardagar-í-skálholti-21-23-nóvember-2025/200028989036138",
        "location": {
            "@type": "Place",
            "name": "Skálholt, 806 Selfoss, Iceland",
            "address": {
                "@type": "PostalAddress",
                "name": "Skálholt, 806 Selfoss, Iceland, Selfoss, Iceland",
                "addressLocality": "Selfoss",
                "addressRegion": "AR",
                "addressCountry": "IS"
            },
            "geo": {
                "@type": "GeoCoordinates",
                "latitude": "64.12732",
                "longitude": "-20.528"
            }
        },
        "eventAttendanceMode": "https://schema.org/OfflineEventAttendanceMode",
        "description": "Kyrrðardagar í Skálholti – næring fyrir sál, anda og líkama\n21.–23. nóvember 2025\n\nNAUÐSYNLEGT ER AÐ SKRÁ SIG Á VIÐBURÐINN MEÐ ÞVÍ AÐ SENDA TÖLVUPÓST Á: skalholt@skalholt.is\n\nGefðu þér helgi þar sem kyrrð, hvíld og slökun eru í forgrunni.\nFriðsælt og fallegt umhverfi Skálholts býður upp á kyrrð og n",
        "organizer": [
            {
                "@type": "Organization",
                "name": "Sklholt",
                "url": "https://allevents.in/org/skálholt/24898327"
            }
        ]
    }
]
```