Hljómsveitin Valdimar heldur tónleika í Austurbæjarbíói 27. desember næstkomandi. Það má búast við kraftmiklum tónleikum þar sem allir helstu slagararnir verða teknir í bland við ný lög sem ekki hafa heyrst áður.
Hljómsveitin er í dúndur formi og hefur verið að vinna í nýju efni undanfarið. Nýlega sendi sveitin frá sér lögin Lungu og Karlsvagninn.
Þetta verða alvöru standandi rokktónleikar sérstaklega hannaðir með það í huga að koma blóðinu á hreyfingu eftir dásamlega jóladaga.
Miðasalan hefst á mánudaginn 17. nóvember
Stay in the loop for updates and never miss a thing. Are you interested?
Yes
No
Undo
Interested
Ticket Info
Tickets for Valdimar í Austurbæjarbíói can be booked here.