

# Event Details

- **Event Name**: Tölum saman um velsældarhagkerfið: Stofnfundur WEAll Hub á Íslandi
- **Event Start and End Date**: Thu, 29 Jan, 2026 at 03:00 pm – Thu, 29 Jan, 2026 at 04:30 pm
- **Event Description**: Hagkerfið sem við búum við í dag er hannað til að setja endalausan hagvöxt ofar velsæld fólks og heilbrigði jarðarinnar. Með því að mæla árangur fyrst og fremst út frá vergri landsframleiðslu (GDP) horfir kerfið fram hjá því hvort fólk geti mætt  grunnþörfum sínum eða lifað innan vistfræðilegra marka. 

Mörgum er því orðið ljóst að núverandi hagkerfi er ekki í stakk búið til þess að leysa helstu áskoranir nútímans – þvert á móti hefur það stuðlað að vaxandi ójöfnuði, hnignun umhverfisins og líffjölbreytni, auknum loftslagsbreytingum og sívaxandi gjá milli efnahagslegra ákvarðanna og almannahagsmuna. 

En hvað er til ráða? Við sem samfélög og einstaklingar virðumst eiga erfitt með að ímynda okkur aðra leið. En þó er staðreyndin sú að hagkerfið er uppfinning manna en ekki byggt á náttúrulögmálum – og það er hægt að hanna það á annan hátt!

Við bjóðum á þennan fund til þess að kynna hugmyndafræðina á bakvið velsældarhagkerfið (Wellbeing Economy) – hagkerfi sem þjónar fólki og Jörðinni, en ekki öfugt. Velsældarhagkerfið skilgreinir árangur út frá velsældarvísum á sviði samfélags, efnahags og umhverfis í stað landsframleiðslu, og setur þannig velsæld, heilsu og öryggi bæði fólks og Jarðarinnar í forgrunn. 

Wellbeing Economy Alliance (WEAII) eru alþjóðleg samtök sem vinna að því að innleiða velsældarhagkerfið, en Ísland og Finnland eru meðal þeirra þjóða sem undanfarin ár hafa starfað innan WEGo (Wellbeing Economy Governments) – samtaka ríkisstjórna um velsældarhagkerfi. Til stendur að stofna WEAII Hub hér á Íslandi og hvetjum við alla áhugasama til þess að kynna sér málið, taka þátt í kynningarfundinum og jafnvel í uppbyggingu WEAII Hub á Íslandi í framhaldinu.

Nánar um WEAII: https://weall.org/what-is-wellbeing-economy


DAGSKRÁ

Stutt erindi:
Kristín Vala Ragnarsdóttir – Hvað er velsældarhagkerfið?
Ásgeir Brynjar Torfason – Velsældarhagkerfi: Grunnstoðir 
Dóra Guðrún Guðmundsdóttir – Velsældarhagkerfi og heilsa
Brynhildur Davíðsdóttir – Velsældarhagkerfi fyrir fólk og Jörð

Almennar umræður um stofnun velsældarmiðstöðvar á Íslandi og hvernig hún gæti starfað. 

Gestir eru vinsamlegast beðnir um að skrá þátttöku hér: https://docs.google.com/forms/d/e/1FAIpQLSe4kxVW70GpusQSadpRs5GsCm94JKLLWr1qH5euK60yHO5wCQ/viewform?usp=sharing&amp;ouid=102565536299568404080
- **Event URL**: https://allevents.in/reykjav%C3%ADk/tölum-saman-um-velsældarhagkerfið-stofnfundur-weall-hub-á-Íslandi/200029486778835
- **Event Categories**: 
- **Interested Audience**: 
  - total_interested_count: 217

## Ticket Details


## Event venue details

- **city**: Reykjavík
- **state**: RE
- **country**: Iceland
- **location**: Norræna húsið  The Nordic House
- **lat**: 64.138068944676
- **long**: -21.947036059946
- **full address**: Norræna húsið  The Nordic House, Bókmenntahátíð í Reykjavík / the Reykjavik International Literary Festival, 102 Reykjavíkurborg, Ísland, Reykjavík, Iceland

## Event gallery

- **Alt text**: Tölum saman um velsældarhagkerfið: Stofnfundur WEAll Hub á Íslandi
  - **Image URL**: https://cdn-az.allevents.in/events4/banners/f13d88af83a42cc2e5eaf2692ce2e64930e95d6a170229926e48a4c5de667cc0-rimg-w1200-h675-dcf0f0f0-gmir?v=1769078050

## FAQs

- **Q**: When and where is Tölum saman um velsældarhagkerfið: Stofnfundur WEAll Hub á Íslandi being held?
  - **A:** Tölum saman um velsældarhagkerfið: Stofnfundur WEAll Hub á Íslandi takes place on Thu, 29 Jan, 2026 at 03:00 pm to Thu, 29 Jan, 2026 at 04:30 pm at Norræna húsið  The Nordic House, Bókmenntahátíð í Reykjavík / the Reykjavik International Literary Festival, 102 Reykjavíkurborg, Ísland, Reykjavík, Iceland.
- **Q**: Who is organizing Tölum saman um velsældarhagkerfið: Stofnfundur WEAll Hub á Íslandi?
  - **A:** Tölum saman um velsældarhagkerfið: Stofnfundur WEAll Hub á Íslandi is organized by Wellbeing Economy Alliance Iceland.
- **Q**: Who is this event for? Is it right for me?
  - **A:** Tölum saman um velsældarhagkerfið: Stofnfundur WEAll Hub á Íslandi is ideal for learners, working professionals, and skill-builders looking to gain hands-on knowledge and practical expertise in a focused, interactive setting. Whether you're a first-time attendee or a longtime enthusiast in Reykjavík, this event is thoughtfully curated to deliver a standout experience worth every moment. With 210+ people already showing interest, this is clearly an event worth adding to your calendar - don't miss out.

## Structured Data (JSON-LD)

```json
[
    {
        "@context": "https://schema.org",
        "@type": "Event",
        "name": "Tölum saman um velsældarhagkerfið: Stofnfundur WEAll Hub á Íslandi",
        "image": "https://cdn-az.allevents.in/events4/banners/f13d88af83a42cc2e5eaf2692ce2e64930e95d6a170229926e48a4c5de667cc0-rimg-w1200-h675-dcf0f0f0-gmir?v=1769078050",
        "startDate": "2026-01-29",
        "endDate": "2026-01-29",
        "url": "https://allevents.in/reykjav%C3%ADk/tölum-saman-um-velsældarhagkerfið-stofnfundur-weall-hub-á-Íslandi/200029486778835",
        "location": {
            "@type": "Place",
            "name": "Norræna húsið  The Nordic House",
            "address": {
                "@type": "PostalAddress",
                "streetAddress": "Bókmenntahátíð í Reykjavík / the Reykjavik International Literary Festival, 102 Reykjavíkurborg, Ísland",
                "addressLocality": "Reykjavík",
                "addressRegion": "RE",
                "addressCountry": "IS"
            },
            "geo": {
                "@type": "GeoCoordinates",
                "latitude": "64.138068944676",
                "longitude": "-21.947036059946"
            }
        },
        "eventAttendanceMode": "https://schema.org/OfflineEventAttendanceMode",
        "description": "Hagkerfið sem við búum við í dag er hannað til að setja endalausan hagvöxt ofar velsæld fólks og heilbrigði jarðarinnar. Með því að mæla árangur fyrst og fremst út frá vergri landsframleiðslu (GDP) horfir kerfið fram hjá því hvort fólk geti mætt  grunnþörfum sínum eða lifað innan vistfræðilegra mark",
        "organizer": [
            {
                "@type": "Organization",
                "name": "Wellbeing Economy Alliance Iceland",
                "url": "https://allevents.in/org/wellbeing-economy-alliance-iceland/27343315"
            }
        ]
    }
]
```