Nútímavísindin eru enn langt frá því að geta rökstutt
vísindalega hina miklu niðurstöðu: „Allt er harla gott“.
Rannsóknarsvið þeirra er of takmarkað og staðbundið til
að þau geti numið hið allsherjar heimsskipulag. Getur
mannkynið þá öðlast sýn á þessa heimsáætlun og þar með
lært að starfa í samræmi við hana og komast í sátt við lífið?
– En jarðarmanneskjan, sem þekkir enn aðeins efnislega
líkama sinn og telur sig eitt með honum, hlýtur að verða
fórnarlamb blekkingarinnar um að dauðinn sé eyðing
tilverunnar eða endalok lífsins.
Hvað dauðann varðar, þá er hann – þegar hann á sér stað
á eðlilegan hátt – í raun atburður ljóssins sem aðeins er
ástæða til að fagna.
Það eina sem gerist er að hinn svokallaði „dauði“ er lausn undan slitnum og úrsérgengnum líkama. En samkvæmt Martinusi er
alheimurinn lifandi vera með vitund, byggður upp af lifandi
verum. Vitund sem samanstendur af hugsun og visku. Þessi
"lifandi vitund" skipuleggur og skapar rökrétt samhengi
gagnvart öllu sem er lifandi.
You may also like the following events from Lífspekifélagið: