Jazzklúbburinn Múlinn heldur áfram með vordadagskrá sína með spennandi tónleikum miðvikudaginn 22. apríl kl. 20:00 á Björtuloftum, Hörpu. Á tónleikunum koma fram söngkonan Silva Þórðardóttir og píanoleikarinn Steingrímur Karl Teague. Allt frá því að Silva og Steini hittust fyrst yfir eplaköku og svörtu kaffi hafa þau lagt sig eftir því að draga fram hið mannlega, brothætta –– og örlítið myrka ––í söngbók jazzins. Platan More Than You Know kom út árið 2022 við fádæma undirtektir. Síðustu jól kom svo út platan Christmas with Silva and Steini, og breiðskífan More Understanding nú síðasta haust. Á tónleikunum koma þau fram sem dúett, þar sem áherslan verður lögð á samsöng, og sterka nánd. Lögin koma héðan og þaðan, yfirleitt neðst úr standardaskúffunni, en alltaf eru þetta tón- og textasmíðar sem þola að eimast og endurhugsast, án þess þó að tapa sinni dýrustu glóð.
Silva, söngur og píanó
Steingrímur Karl Teague, söngur, wurlitzer og píanó
Silva and Steini
Almost a decade ago, Silva and Steini met for black coffee, apple pie and a run-through of esoteric jazz standards. Three albums later, their mission remains the same: to tease out the human, fragile ––and slightly dark––elements of the jazz songbook. The chosen songs range from seldom-heard standards to more recent fare, and the arrangements always favour space, harmony and atmosphere.
Silva, vocals and piano
Steingrímur Karl Teague, vocals, piano and wurlitzer
The concert starts at 20 @ Björtuloft, Harpa Concert House. Tickets ISK 4900.
Spennandi vordagskrá Múlans heldur síðan áfram á miðvikudagskvöldum fram í lok maí. Múlinn er að hefja sitt 29. starfsár en hann er samstarfsverkefni Félags Íslenskra Hljómlistamanna (FÍH) og Jazzvakningar. Klúbburinn heitir í höfuðið á Jóni Múla Árnasyni sem jafnframt var heiðursfélagi og verndari Múlans.
Múlinn er styrktur af Reykjavíkurborg, Tónlistarsjóði og SUT sjóðnum og er í samstarfi við Heimstónlistarklúbbinn og Hörpu.
Jazzklúbburinn Múlinn er handhafi Íslensku tónlistarverðalaunanna.
Tónleikar Múlans fara fram á miðvikudagskvöldum klukkan 20:00 á Björtuloftum, fimmtu hæð Hörpu. Miðaverð kr. 4900 og 3600 fyrir nemendur og eldri borgara, miðar fást í miðasölu Hörpu
You may also like the following events from Mulinn Jazz club:
Also check out other
Music events in Reykjavík,
Entertainment events in Reykjavík,
Concerts in Reykjavík.