

# Event Details

- **Event Name**: Kundalini Activation à vetrarsòlstöðum?
- **Event Start and End Date**: Sun, 21 Dec, 2025 at 08:15 pm – Sun, 21 Dec, 2025 at 10:15 pm
- **Event Description**: Kundalini Activation á Vetrarsólstöðum

21.12.2025

Frakkastígur 16, 101 Reykjavík
Verð: 8.000 kr
Skráningar fara fram í skilaboðum hér á Facebook eða á thorakolbrun@gmail.com

? Vetrarsólstöður

Þegar dagurinn er stystur og nóttin lengst breiðir kyrrðin sig yfir landið eins og mjúkur andardráttur. Sólin stendur lægst á lofti og jörðin andar hægt í dvala, myrkri og friði.

Það er tími innri kyrrðar. Tími þegar náttúran sjálf hægir á hjartslætti sínum. Jörðin liggur í dvala, kulda og myrkri. Dýr, plöntur og menn skynja að þetta er sá tími ársins þegar við eigum að gefa eftir, slaka à, mýkjast og snúa inn á við.

Við göngum inn í yin-orku vetrarins, mjúk og kyrrlát orka sem nærir allt sem er tilbúið að hvílast og taka á móti.

Myrkrið sem nú umlykur okkur er ekki tómið sem margir óttast, heldur frjótt rými þar sem lífið endurstillir sig. Það býður okkur að mæta okkur sjálfum. Að mæta myrkrinu, bæði innra og ytra, áður en ljósið rís á ný.

Vetrarsólstöður hafa frá örófi verið haldnar í heiðri. Þær eru ekki aðeins tímamót í náttúrunni, heldur í vitund mannsins. Hér á landi tengjum við þær mest við jólin, hátíð ljóss og endurnýjunar. En undir öllum ljósunum býr eldri og dýpri sannleikur: Að myrkrið er ekki andstæða ljóss heldur móðir þess. Í myrkrinu skín ljós skærast.

VETRARSÓLSTÖÐUR MINNA OKKUR Á:

• Að birtan snýr alltaf aftur
• Að nýtt tímabil er að hefjast
• Að næstu skref mótast af meðvitund og skýrleika
• Að kyrrðin er rými þar sem nýtt ljós kviknar

À ÞESSUM DEG​I ER EÐLILEGT AÐ VILJA:

• Snúa inn á við
• Tengjast hjartanu
• Finna jarðtengingu og jafnvægi
• Hreinsa, endurnýja og opna
• Taka á móti nýrri orku og nýju upphafi

Kundalini Activation 

Kundalini er lífsorka sem býr í hverri manneskju. Í Kundalini Activation getur þessi orka vaknað og byrjað að hreyfast með eigin visku og á eigin hraða. Hún fylgir ekki vilja þess sem miðlar, heldur fer þangað sem líkamskerfið og djúp meðvitund eru tilbúin að taka á móti.

Hún getur stutt við:

• Losun spennu og orkubundinna stíflna
• Aukið næmi og skýrleika í tilfinningum
• Dýpri tengingu við eigin sannleika 
• Innri ró, mýkt og jarðtengingu
• Endurnýjaða orku og jafnvægi í líkama og vitund

Hvernig fer tíminn fram?

Þú liggur á jógadýnu á meðan tónlist er spiluð. Léttur þrýstingur er settur á ákveðna orkustöður, t.d. á enni, brjóstkassa og maga.

Reynslan er einstök fyrir hvern og einn og getur birst á ólíkan hátt, til dæmis:

• Ósjálfráðar hreyfingar eða orkutitringur í líkamanum
• Djúp hugleiðsla, innri kyrrð eða útvíkkuð   meðvitund
• Innsæi, skynjanir eða sjónrænar upplifanir
• Tilfinningaflæði, losun, mýkt og hjartatenging
• Endurnýjuð lífsorka, léttleiki 
og djúp jarðtenging

Orkunni er ekki stjórnað. Hún finnur sjálf sína leið og mætir því sem er tilbúið að opnast, losna eða umbreytast.

 Ummæli 

„Kundalini Activation hjá Þóru Kolbrúnu er einhver merkilegasta uppgötvun sem ég hef gert til að draga úr streitu og bæta heilsu. Eftir fyrsta tímann leið mér eins og ég hefði verið í þriggja daga slökunarhelgi og spennan sem ég bar losnaði á mettíma.

Eftir nokkra mánuði af reglulegri mætingu finn ég miklu meira jafnvægi, meiri orku og betri svefn. REM-svefninn sem ég náði varla áður hefur lagast, líklega vegna minnkaðrar streitu.
 
Ég hvet alla til að prófa kundalini activation sem stuðning við líkamlega, tilfinningalega og andlega heilsu.”

~Gunnar Jónsson

Ég er búin að vera nokkuð reglulega í kundalini activation í rúmt ár og ef ég miða við hvernig allt var hjá mér þá og núna, þá er það svart og hvítt. Ótrúlegar breytingar hafa átt sér stað, ég segi að ég sé búin að vera í heilunarferðalagi í rúmt ár. Mæli heilshugar með fyrir alla.

~ Stella Maris

Kundalini activation kom eins og himnasending til mín eftir virkilega erfið ár, þá vissi ég ekkert hvernig mér leið og hvort ég ætti að hlæja eða gráta og þannig leið mér einnig í tímunum. Ég hef upplifað allskonar í tímunum og hefur þetta heilað svo margt hjá mér. Ég veit ekki hvernig og skil ekki hvernig þetta virkar en þetta virkar svo sannarlega og ég hef lært að sleppa tökunum á að reyna fá svar við öllu.

Kundalini activation hefur heilað margt sem ég hef enga þörf á lengur og líður mér andlega miklu betur. Kundalini activation togar reglulega í mig, þá þarf ég greinilega að losa mig við eitthvað. Ég mæli heilshugar með Kundalini activation. 

Rakel Sigurðardóttir

Þegar ég kom í kundalini activatiom þá var ég mjög spenntur en vissi ekki hvað ég var að fara að fara út í. Í fyrsta tímanum náði ég mikilli tengingu við sjálfan mig og komst á hreinan, friðsælan og fallegan stað sem ég hafði ekki upplifað áður eða allavega ekki svo ég muni eftir. Þetta var mjög mikilvæg reynsla og varð að nokkurs konar leiðarljósi fyrir mig og hef ég komið reglulega síðan til að upplifa töfrana sem kundalini activation hefur upp á að bjóða.

~Pétur Hafsteinsson

Hef verið að mæta í kundalini activation hjá henni Þóru Kolbrúnu núna í nokkur ár. Þóra hefur sterka, hlýja, fallega og jarðtengda orku. Er yndisleg mannvera og mikið ljós. Ég upplifi mikinn kraft, hreinsun og sé oft sýnir í tímum hjá henni. Eftir hvern tíma opnast eitthvað nýtt fyrir mér og upplifi létti á sál og líkama. Hef náð að vinna betur í mér og því sem hefur verið stíflað í kerfinu. Mæli með henni Þóru alla leið ! Þvílíkt ævintýri að vera samferða henni á þessu andlega ferðalagi. Hlakka alltaf til að koma aftur?

~ Anna Heiða

? Lesefni &amp; tenglar

? Viðtal í Fréttablaðinu (PDF)

? Sjá viðtalið hér (PDF)

? Myndband á YouTube

▶️ Horfa á myndbandið á YouTube

?‍♀️ Mind the KAP (Kundalini Activation Process) – Part One
? https://www.sfyogamagazine.com/blog/2019/5/4/mind-the-kap-kundalini-activation-process-part-one
 
? Experiencing Non-Duality Through Kundalini Activation Process (KAP)
? https://www.thecalmpost.com/blog/experiencing-non-duality-through-kundalini-activation-process-kap

 ? The Life-Changing Practice of Kundalini Activation Process (KAP) (Brainz Magazine)
? https://www.brainzmagazine.com/post/the-life-changing-practice-of-kundalini-activation-process-kap

Bókanir og fyrirspurnir fara fram í skilaboðum á Facebook-síðunni (Soul Touch) eða á netfanginu; thorakolbrun@gmail.com

Kær kveðja,
Þóra Kolbrún
- **Event URL**: https://allevents.in/reykjav%C3%ADk/kundalini-activation-à-vetrarsòlstöðum/200029351831913
- **Event Categories**: 
- **Interested Audience**: 
  - total_interested_count: 8

## Ticket Details


## Event venue details

- **city**: Reykjavík
- **state**: RE
- **country**: Iceland
- **location**: Frakkastígur 16
- **lat**: 64.14402
- **long**: -21.9261
- **full address**: Frakkastígur 16, Frakkastígur 16, 101 Reykjavíkurborg, Ísland, Reykjavík, Iceland

## Event gallery

- **Alt text**: Kundalini Activation à vetrarsòlstöðum?
  - **Image URL**: https://cdn-az.allevents.in/events9/banners/c17385b389e7f1294fde10b0f1062073a8736053f5e2ac4d993912e964011c2c-rimg-w1024-h1536-dc044446-gmir?v=1766340990

## FAQs

- **Q**: When and where is Kundalini Activation à vetrarsòlstöðum? being held?
  - **A:** Kundalini Activation à vetrarsòlstöðum? takes place on Sun, 21 Dec, 2025 at 08:15 pm to Sun, 21 Dec, 2025 at 10:15 pm at Frakkastígur 16, Frakkastígur 16, 101 Reykjavíkurborg, Ísland, Reykjavík, Iceland.
- **Q**: Who is organizing Kundalini Activation à vetrarsòlstöðum??
  - **A:** Kundalini Activation à vetrarsòlstöðum? is organized by Thora Kolbrun.
- **Q**: Who is this event for? Is it right for me?
  - **A:** Kundalini Activation à vetrarsòlstöðum? is ideal for curious learners, students, and skill-builders looking to gain hands-on knowledge and practical expertise in a focused, interactive setting. Whether you're a first-time attendee or a longtime enthusiast in Reykjavík, this event is thoughtfully curated to deliver a standout experience worth every moment. If Kundalini Activation à vetrarsòlstöðum? sounds like your kind of event, don't wait - spots fill up fast.

## Structured Data (JSON-LD)

```json
[
    {
        "@context": "https://schema.org",
        "@type": "Event",
        "name": "Kundalini Activation à vetrarsòlstöðum?",
        "image": "https://cdn-az.allevents.in/events9/banners/c17385b389e7f1294fde10b0f1062073a8736053f5e2ac4d993912e964011c2c-rimg-w1024-h1536-dc044446-gmir?v=1766340990",
        "startDate": "2025-12-21",
        "endDate": "2025-12-21",
        "url": "https://allevents.in/reykjav%C3%ADk/kundalini-activation-à-vetrarsòlstöðum/200029351831913",
        "location": {
            "@type": "Place",
            "name": "Frakkastígur 16",
            "address": {
                "@type": "PostalAddress",
                "streetAddress": "Frakkastígur 16, 101 Reykjavíkurborg, Ísland",
                "addressLocality": "Reykjavík",
                "addressRegion": "RE",
                "addressCountry": "IS"
            },
            "geo": {
                "@type": "GeoCoordinates",
                "latitude": "64.14402",
                "longitude": "-21.9261"
            }
        },
        "eventAttendanceMode": "https://schema.org/OfflineEventAttendanceMode",
        "description": "Kundalini Activation á Vetrarsólstöðum\n\n21.12.2025\n\nFrakkastígur 16, 101 Reykjavík\nVerð: 8.000 kr\nSkráningar fara fram í skilaboðum hér á Facebook eða á thorakolbrun@gmail.com\n\n? Vetrarsólstöður\n\nÞegar dagurinn er stystur og nóttin lengst breiðir kyrrðin sig yfir landið eins og mjúkur andardráttur.",
        "organizer": [
            {
                "@type": "Organization",
                "name": "Thora Kolbrun",
                "url": "https://allevents.in/org/thora-kolbrun/25725553"
            }
        ]
    }
]
```