

# Event Details

- **Event Name**: Doktorsvörn í þjóðfræði: Áki Guðni Karlsson
- **Event Start and End Date**: Thu, 19 Mar, 2026 at 01:00 pm
- **Event Description**: Áki Guðni Karlsson mun verja doktorsritgerð sína í þjóðfræði við Háskóla Íslands, fimmtudaginn 19. mars 2026. Athöfnin hefst klukkan 13.00 og fer fram í Hátíðasal Háskóla Íslands og er öllum opin.

Vörninni verður einnig streymt: https://vimeo.com/event/5770520

Heiti ritgerðar: Folklore as Intellectual Property: Attempts to Create an International Convention to Protect Traditional Culture.

Doktorsefni: Áki Guðni Karlsson lauk BA-prófi í almennri bókmenntafræði og MA-prófi í þjóðfræði við Háskóla Íslands og stundaði nám í fjölmiðlafræði við Bologna-háskóla á Ítalíu. Hann hefur starfað sem vefstjóri Landsbókasafns Íslands - Háskólabókasafns og verið við rannsóknir og kennslu um árabil. Netfang: akigudni@hi.is og sími 821 3853.

Andmælendur: Ellen Hertz, prófessor emeríta við Neuchâtelháskóla, og Jason Baird Jackson, prófessor við Indiana-háskóla.

Leiðbeinandi: Valdimar Tryggvi Hafstein, prófessor í þjóðfræði við Háskóla Íslands.

Doktorsnefnd: Regina Bendix, prófessor í þjóðfræði við Georg-August háskólann í Göttingen, og Fiona Macmillan, prófessor í lögfræði við Birkbeck College, Lundúnaháskóla, og Università Roma Tre.

Doktorsvörn stýrir: Unnur Dís Skaptadóttir, forseti Félagsfræði-, mannfræði- og þjóðfræðideildar.

Efniságrip:

Ætti að vera til sérstakur hugverkaréttur fyrir gömul prjónamynstur, þjóðvísur frá 19. öld, eða hefðbundna þekkingu á lækningamætti grasa? Hvernig gæti slíkur hugverkaréttur litið út, og hverjir ættu að vera rétthafar? Hvaða afleiðingar gæti það haft fyrir önnur svið hugverkaréttar, og listræna sköpun í samtímanum? Þessar spurningar hafa verið til umræðu um langt árabil innan alþjóðastofnana, meðal lögfræðinga, stjórnmálamanna og baráttufólks fyrir réttindum frumbyggja. Ritgerðin fjallar um tilraunir til að "jafna leikinn" milli hefðbundinnar og opinberrar listsköpunar, með því að skilgreina hugverkarétt fyrir alþýðumenningu: hefðbundna tónlist, skáldverk, handverk og hönnun, sem hefur ferðast og þróast milli kynslóða á löngum tíma. Gagnrýni á ójafna stöðu alþýðulistafólks, frumbyggja og hins hnattræna suðurs gagnvart hugverkarétti, leiddi til langra viðræðna um hugverkaréttarlega stöðu alþýðumenningar innan bæði UNESCO og Alþjóðahugverkastofnunarinnar. Ritgerðin rekur sögu þessara viðræðna, með áherslu á milliríkjanefnd um erfðaauðlindir, hefðbundna þekkingu og alþýðumenningu, sem hefur hist á reglulegum fundum í Genf frá árinu 2001. Höfundur færir rök fyrir því að hugverkaréttarkerfið hafi frá upphafi byggst á því að útiloka hefðbundna listsköpun, til að skapa rými fyrir vestræna borgaralega nútímalist. Hugverkaréttur fyrir alþýðumenningu getur því riðlað undirstöðum kerfisins sjálfs. Það útskýrir aftur hversu erfiðlega hefur gengið að koma slíkum breytingum í gegn, þrátt fyrir margar tilraunir og áratugalangar viðræður.

 

Um doktorsefnið:

Áki Guðni Karlsson lauk BA-prófi í almennri bókmenntafræði, og MA-prófi í þjóðfræði við Háskóla Íslands, og stundaði nám í fjölmiðlafræði við Bologna-háskóla á Ítalíu. Hann hefur starfað sem vefstjóri Landsbókasafns Íslands - Háskólabókasafns; og fengist við rannsóknir og kennslu um árabil.
- **Event URL**: https://allevents.in/reykjav%C3%ADk/doktorsvörn-í-þjóðfræði-Áki-guðni-karlsson/200029816509325
- **Event Categories**: 
- **Interested Audience**: 
  - total_interested_count: 87

## Ticket Details

- **Ticket URL**: http://facebook.com/200029816509325?utm_source=AllEvents.in&utm_medium=event-discovery-platform&utm_campaign=reykjav%C3%ADk-events

## Event venue details

- **city**: Reykjavík
- **state**: RE
- **country**: Iceland
- **location**: Háskóli Íslands
- **lat**: 64.139753663281
- **long**: -21.950184342222
- **full address**: Háskóli Íslands, Sæmundargötu 2,Reykjavík, Iceland

## Event Organizer details

- **affiliate_id**: 2
- **organizer**: Félagsvísindasvið Háskóla Íslands (https://allevents.in/org/félagsvísindasvið-háskóla-Íslands/19466037)

## Event gallery

- **Alt text**: banner
  - **Image URL**: https://cdn-az.allevents.in/events9/banners/2a7f1a1c8d51bab54bf59c8130db0727550ddf7dc7ecb1205ac2b8a0c5f71801-rimg-w1200-h628-dc2d2f31-gmir?v=1773643524
- **Alt text**: thumbnail
  - **Image URL**: https://cdn-az.allevents.in/events9/banners/467f197f057e168dd2ed91d741f073c2458af13ebe815cfc2e6b65e50fc28038-rimg-w300-h300-dc2d2e2f-gmir?v=1773643525

## FAQs

- **Q**: When is the event happening?
  - **A:** Thu, 19 Mar, 2026 at 01:00 pm
- **Q**: Where is the event happening?
  - **A:** Háskóli Íslands, Sæmundargötu 2,Reykjavík, Iceland
- **Q**: Who is organizing the event?
  - **A:** Félagsvísindasvið Háskóla Íslands
- **Q**: What type of event is this?
- **Q**: Where can I find ticket details about Doktorsvörn í þjóðfræði: Áki Guðni Karlsson ?
  - **A:** You can find ticket details about this event on AllEvents.

## Structured Data (JSON-LD)

```json
[
    {
        "@context": "https://schema.org",
        "@type": "Event",
        "name": "Doktorsvörn í þjóðfræði: Áki Guðni Karlsson",
        "image": "https://cdn-az.allevents.in/events9/banners/2a7f1a1c8d51bab54bf59c8130db0727550ddf7dc7ecb1205ac2b8a0c5f71801-rimg-w1200-h628-dc2d2f31-gmir?v=1773643524",
        "startDate": "2026-03-19",
        "url": "https://allevents.in/reykjav%C3%ADk/doktorsvörn-í-þjóðfræði-Áki-guðni-karlsson/200029816509325",
        "location": {
            "@type": "Place",
            "name": "Háskóli Íslands",
            "address": {
                "@type": "PostalAddress",
                "streetAddress": "Sæmundargötu 2,Reykjavík, Iceland",
                "addressLocality": "Reykjavík",
                "addressRegion": "RE",
                "addressCountry": "IS"
            },
            "geo": {
                "@type": "GeoCoordinates",
                "latitude": "64.139753663281",
                "longitude": "-21.950184342222"
            }
        },
        "eventAttendanceMode": "https://schema.org/OfflineEventAttendanceMode",
        "description": "Áki Guðni Karlsson mun verja doktorsritgerð sína í þjóðfræði við Háskóla Íslands, fimmtudaginn 19. mars 2026. Athöfnin hefst klukkan 13.00 og fer fram í Hátíðasal Háskóla Íslands og er öllum opin.\n\nVörninni verður einnig streymt: https://vimeo.com/event/5770520\n\nHeiti ritgerðar: Folklore as Intellec",
        "organizer": [
            {
                "@type": "Organization",
                "name": "Flagsvsindasvi Hskla slands",
                "url": "https://allevents.in/org/félagsvísindasvið-háskóla-Íslands/19466037"
            }
        ]
    }
]
```