Þema HönnunarMars og DesignTalks í ár eru Tengingar. Í heimi sem bæði er ofurtengdur og aftengdur er spennandi að beina sjónum að þessari knýjandi þörf manneskjunnar fyrir tengsl, að þráðunum sem tengja allt saman og töfrunum sem liggja í tengingunum sjálfum. Tengingar eru grunnurinn að öllu og lífæðar samfélaga. Borgin er ekkert án tenginga, byggingin lifnar við í tengingum sem fólk hefur við hana, flíkin er ekkert án þess sem klæðist henni. Ekkert snertir við okkur nema við tengjum við það.
Ertu að tengja?
Taktu daginn frá og tryggðu þér miða í forsölu:
https://tix.is/event/20432/design-talks-2026
DesignTalks hefur verið lykilviðburður HönnunarMars, hátíðar hönnunar og arkitektúrs á Íslandi, frá upphafi og fest sig í sessi sem mikilvægur vettvangur innblásturs og samtals um hönnun og arkitektúr, samtímarýni og framtíðarsýn.
Viðburðurinn fer fram á ensku.
//
The overarching theme for DesignMarch 2026 is Connections. In a world characterized by both hyperconnectivity and disconnection, it is compelling to focus on the fundamental human need for connection – on the intricate threads that link everything and the inherent magic within these connections. Connections form the foundation of everything, they are society’s very lifeblood. A city is incomplete without its networks, a building comes to life through its relationships with people, and a garment holds significance through its wearer. Ultimately, nothing affects us unless we establish a connection with it.
Are you ready to connect? Grab your Early Bird ticket here:
https://tix.is/event/20432/design-talks-2026
DesignTalks, the keynote event of the DesignMarch festival, has become an important forum for inspiration and conversation about design and architecture, current challenges and futures.
The event is held in English.
Also check out other Festivals in Reykjavík, Business events in Reykjavík.