Event

Skógardagurinn í Kjarnaskógi

Advertisement

Skógardagur Skógræktarfélags Eyfirðinga í Kjarnaskógi verður haldinn á Birkivelli.

Íþróttaálfurinn og Daníel töframaður munu skemmta gestum á Kirsuberjaflötinni.
Á svæðinu verður sveppafræðsla með Guðríði Gyðu, hægt verður að poppa popp yfir varðeldi og foreldrar geta bragðað sér á ketilkaffi í leiðinni, Spari Spari tónleikar á Birkivelli þar sem Birkibandið kemur fram og spilar fyrir gesti og gangandi.

Hægt verður að gæða sér á ís frá Ísbúð Akureyrar en þau verða með ísvagn á svæðinu og Netto býður uppá ávexti handa öllum víðsvegar um svæðið!

Íþróttaálfurinn stígur á svið kl.13:30 og Daníel töframaður strax á eftir.
Klæðum okkur eftir veðri, tökum með teppi og höfum það notalegt í skóginum okkar!



Advertisement
Share with someone you care for!

Best of Akureyri Events in Your Inbox