Ljóð í hljóði
Advertisement
Fyrir ári síðan yfirfylltu feðgarnir Þórarinn og Halldór Eldjárn Davíðshús þegar þeir fluttu dagskrá þar sem þeir tvinna saman ljóð Þórarins og tónlist Halldórs. Nú skal fjörið fært á Minjasafnið þar sem þeir feðgar endurtaka, en þó ekki, herlegheitin á rýmri stað.
Þórarin Eldjárn þarf vart að kynna enda ljóðlist hans „orðin íslensk klassík“ eins og Sjón kemst að orði í kynningu á bókinni 100 kvæði, sem nýverið kom út í tilefni af 50 ára höfundarafmæli Þórarins.
Halldór Eldjárn er tónlistarmaður og forritari. Í sköpun sinni spinnur hann vef úr þessum tveimur þráðum svo úr verður stór hljóðheimur. Halldór hefur komið víða við unnið með ýmsum listamönnum s.s. Ólafi Arnalds, GDRN og Björk. Hann stofnaði hljómsveitina Sykur ásamt félögum sínum árið 2008 sem gefið hefur út þrjár hljómplötur. Fyrsta sólóplata hans kom út árið 2019 og ber nafnið Poco Appollo.
Bækur Þórarins verða til sölu á afar hagstæðu verði og fást áritaðar af höfundi.
Hvar: Minjasafnið á Akureyri, Aðalstræti 58 Akureyri
Hvenær: fimmtudaginn 31. júlí kl. 20
Aðgangseyrir aðeins 1500 kr. – ókeypis fyrir handhafa safnapassa Minjasafnsins á Akureyri