Event

ÖRNÁMSKEIÐ Í LEIRMÓTUN: PULSUAÐFERÐ

Advertisement

Námskeiðið Örnámskeið í leirmótun: Pulsuaðferð er það fyrsta í röð inngangsnámskeiða í leirmótun, þar sem tiltekin aðferð við mótun og hleðslu leirs er tekin fyrir.

Nemendur munu móta hlut með svokallaðri pulsuaðferð undir handleiðslu kennara. Þeim gefst líka færi á að lita hlutinn með leirlit en kennari mun glerja hlutina með glærum glerungi eftir að námskeiði lýkur sé þess óskað.

Eftir námskeiðið eiga þátttakendur að hafa fengið tilfinningu fyrir möguleikum og takmörkunum aðferðarinnar og geta nýtt sér hana í sjálfstæðri vinnu.

Þar sem um inngangsnámskeið er að ræða, er námskeiðið sérstaklega sniðið að þörfum byrjenda. Lengra komnum er þrátt fyrir það velkomið að sækja námskeiðið enda er það kjörið tækifæri til að leira í félagsskap annarra.

Ljósmynd viðburðarins er eftir og í eigu Kötlu Rúnarsdóttur, kennarar námskeiðsins, af leirkeri hennar Konna.

Verð: 47.000 kr.
Get Tickets

Advertisement
Share with someone you care for!

Best of Reykjavík Events in Your Inbox