Event

DAÐI FREYR Á VAGNINUM.

Advertisement

Ég ætla að koma og halda eitt gott partí! Ég hef ekki spilað mikið á Íslandi undanfarið, en er að vinna í nýju live setti sem ég ætla að ferðast um evrópu með. Ég ætla að spila lögin sirka eins og þau verða tekin á þeim túr. Ef það á að halda gott partí þá er eins gott að gera það á Vagninum!

Daða Frey þarf vart að kynna fyrir landsmönnum. Hann kom sá og sigraði fyrir nokkrum árum og hefur verið að sigra heiminn undanfarið. Nú er hann kominn heim og ætlar að heiðra Eyrina góðu með nærveru sinni. Hann kemur á Vagninn þar sem hann hefur ekki spilað í þó nokkurn tíma.
Þess má geta að Daði Freyr starfaði á Flateyri sumarið 2013 sem hljóðmaður í kvikmyndinni París Norðursins og kynntist þá Vagninum vel.

Forsala aðgöngumiða fer fram í gegnum þennan hlekk hér. Ég hvet alla til þess að tryggja sér miða.
https://tix.is/event/19906/dadi-freyr-a-vagninum-25-juli-vagninn-flateyri

Get Tickets

Advertisement
Share with someone you care for!

Best of Ísafjörður Events in Your Inbox