Event

Pétursey - Fræðsluganga 10. ágúst

Advertisement

Fræðslugöngur sumarið 2025.
22. júní - 19. júlí - 10. ágúst

Brött og hömrum krýnd rís Pétursey 274 m upp af sléttlendi. Eyjólfur Guðmundsson (1870-1954) rithöfundur á Hvoli í Mýrdal sagði svo frá "Hvergi á Íslandi munu vera til eins margar þjóðsögur bundnar við einn stað og í Pétursey. Hver klettur og hver þúfa á sína sögu." Margar af þessum sögum skráði Eyjólfur (langalang afi minn) og hef ég á undanförnum árum notið góðs af því þar sem ég hef lesið sögurnar og skoðað marga af þessum merkilegu stöðum. Þessum fróðleik hef ég nú þegar deilt með nokkrum hópum sem hafa gengið með mér upp á Pétursey en nú ætla ég að bjóða upp á göngu opna öllum þeim sem hafa áhuga á íslenskri náttúru og sögum frá fyrri tíð.

Verið öll velkomin!



Advertisement
Share with someone you care for!

Best of Vestmannaeyjar Events in Your Inbox