Event

Matthías Harðarson Dómorganisti / ORGELSUMAR Í HALLGRÍMSKIRKJU 2025

Advertisement

Orgelsumar í Hallgrímskirkju 2025
Laugardagur 26. júlí kl. 12
Matthías Harðarson, orgel Dómkirkjan í Reykjavík

Miðasala fer fram í Hallgrímskirkju og á tix.is
Aðgangseyrir 2.900 kr.

Efnisskráin er með frönsku ívafi. Þar meðal annars mun orgelið bregða sér í hlutverk hljómsveitar og einleikshljóðfæris á sama tíma. En það er orgel umritun á hinu fallega verki Sicilienne eftir Gabriel Fauré. Einnig mun kunnulegt stef hljóma í búningi fyrrum organista Notre dame kirkjunnar í París Pierre Cochereau.

Matthías Harðarson hóf píanónám 10 ára gamall við Tónlistarskólann í Vestmannaeyjum. Meðal kennara hans þar voru þau Gíslína Sól Jónatansdóttir, Guðmundur H. Guðjónsson og Kittý Kovács. Hann lærði einnig á saxófón undir handleiðslu Stefáns Sigurjónssonar. Að loknu miðprófi á píanó hóf Matthías nám á orgel hjá þáverandi organista Landakirkju, Guðmundi H. Guðjónssyni og síðar hjá Kittý Kovács. Árið 2016 lauk Matthías kirkjuorganistaprófi frá Tónskóla Þjóðkirkjunnar og lauk kantorsprófi sem og BA námi við Listaháskóla Íslands 2020. Þar lærði hann orgelleik hjá Birni Steinari Sólbergssyni, kórstjórn hjá Magnúsi Ragnarssyni og litúrgískanorgelleik hjá Guðný Einarsdóttur, Eyþóri Inga Jónssyni og Láru Bryndísi Eggertsdóttur. Samhliða orgelnáminu lagði Matthías stund á Vélstjórn og útskrifaðist sem Vélfræðingur árið 2017. Matthías hefur lokið mastersnámi í kirkjutónlist við konunglega tónlistarháskólann í Árósum. Undir leiðsögn Kristian Krogsøe, Lars Rosenlund Nørremark og Ulrik Spang-Hanssen. Matthías tók nýlega við stöðu organista við Dómkirkjuna í Reykjavík.

--ENGLISH--

ORGAN SUMMER IN HALLGRÍMSKIRKJA 2025
Matthías Harðarson, organ - The Westman Islands
Saturday July 26th at 12hrs
Tickets are available at the entrance and on tix.is
Admission ISK 2.900

The program has a French flair. Among other things, the organ will take on the role of both orchestra and solo instrument at the same time. This includes an organ transcription of the beautiful piece Sicilienne by Gabriel Fauré. A familiar theme will also be heard in an arrangement by the former organist of Notre-Dame Cathedral in Paris, Pierre Cochereau.

Matthías Harðarson began his musical studies at the age of 10 and studied at the music school in Vestmannaeyjar. His teachers there were Gíslína Sól Jónatansdóttir, Guðmundur H. Guðjónsson and Kittý Kovács. He also played the saxophone with Stefán Sigurjónsson. In 2016 Matthías graduated with a Church organist diploma. In 2020 Matthías graduated from Listaháskóli Íslands with a BA degree in Church music and a Kantor diploma from the Music School of the National Church in Iceland. His teachers there were Björn Steinar Sólbergsson, organ, Magnús Ragnarsson, Choir conducting, Guðný Einarsdóttir, Eyþór Ingi Jónsson, and Lára Bryndís Eggertsdóttir in liturgical organ playing. In 2017 Matthías graduated as a Marine engineer. Matthías has finished a Masters’s degree from The Royal Academy of Music where Kristian Krogsøe, Lars Rosenlund Nørremark, and Ulrik Spang-Hanssen were his teachers. Matthías is since recently the organist at the Reykjavík Cathedral.
Get Tickets

Advertisement
Share with someone you care for!

Best of Reykjavík Events in Your Inbox