Laxdæla með Vilborgu Davíðs
Advertisement
Laxdæla hinnar dýrfirsku Vilborgu Davíðsdóttur hefur notið mikilla vinsælda í Landnámssetrinu suður í Borgarfirði. Nú mætir Villa heim í Dýrafjörð og sýnir Laxdælu í Kómedíuleikhúsinu í Haukadal á Dýrafjarðardögum. Aðeins þessi eina sýning svo um að gera að panta miða fyrr en seinna.
Miðaverð: 4.900.- krónur
Miðasölusími: 891 7025
Ástir og afbrýði, hetjur og harmar, blóðhefndir og vígaferli, álög og seiður. Allt þetta og meira til er að finna í Laxdælu sem hefur um aldir verið ein ástsælasta Íslendingasagan. Sterkar konur og skrautbúnir menn stíga þar fram í röðum en það er hin örlynda Guðrún Ósvífursdóttir sem bindur söguna saman, konan sem þótti bestur kvenkostur á öllu Íslandi um sína daga, vænst bæði að ásjónu og vitsmunum, allra kvenna kænst og best orði farin.
,,Þeim var ég verst er ég unni mest," sagði hún undir lok sinnar harmrænu og átakamiklu ævi - en hvort átti hún við Kjartan eða Bolla?
Vilborg Davíðsdóttir rithöfundur rekur söguna af þessum fræga ástarþríhyrningi á sinn einstaka hátt.