Harmonikuball í Ögri 18. júlí 2025
Advertisement
Harmonikuball verður haldið í Samkomuhúsinu í Ögri föstudaginn 18. júlí kl. 20.30 - 22.39 í tilefni af aldarafmæli hússins. Landsþekktir tónlistarmenn leika fyrir dansi, þau Vigdís Jónsdóttir og Einar Friðgeir Björnsson harmonikuleikarar og Marinó Björnsson bassaleikari. Ungir og aldnir fá þarna kjörið tækifæri til að upplifa ball í anda þess tíma þegar Ögurhreppur var blómleg sveit með litríku mannlífi og öflugu menningar- og félagsstarfi.
Harmonikuballið er opið öllum og aðgangur ókeypis.
Harmonikuballið er opið öllum og aðgangur ókeypis.
Advertisement