Event

Styrktarviðburður Dyrfjallahlaupsins og PÍETA með Jóa Pé og Króla

Advertisement

Eftir allt puðið og áreynsluna í Dyrfjallahlaupinu langar okkur að bjóða ykkur á tónleika kl 18:00 (vonumst innilega að við getum verið úti en sjáum hvernig veðrið leikur við okkur). Það mun ekki kosta neitt inn á tónleikanna en okkur þætti ótrúlega vænt um að þið greiðið þá upphæð sem þið viljið og allur ágóði af viðburðinum mun renna til Píeta samtakanna. Einnig verður hægt að leggja inn á styrktarreikning UMFB fyrir þau sem komast ekki á viðburðinn en vilja leggja okkur lið. Dyrfjallahlaupið mun svo afhenda Píeta samtökunum það sem safnast.

Píeta samtökin sinna forvarnar-, fræðslu- og meðferðarstarfi gegn sjálfsvígum og sjálfsskaða og styðja við aðstandendur. Nýverið opnuðu þau útibú á Reyðarfirði í samstarfi við Alcoa Fjarðarál.

Þetta verða skemmtilegir og hressir tónleikar og í boði fyrir alla fjölskylduna að koma og njóta með okkur, hvetjum fólk til að koma með börnin með sér.







Advertisement
Share with someone you care for!

Best of Egilsstadir Events in Your Inbox