FULLBÓKAÐ Krílasöngur fyrir 6-18 mánaða með foreldrum
Advertisement
Athugað að fullbókað er í Krílasöng bæði kl. 11:00 og 13:00. Krílasöngur fyrir 6 - 18 mánaða með foreldrum. Sun. 29.6.2025 kl. 11:00-11:45 og 13:00-13:45. Tímarnir eru aðskildir. Við syngjum og dönsum saman og hlustum á tónlist. Nánd og snerting styrkir tengslamyndun milli foreldris og barns og sönggleðin styrkist. Rannsóknir sýna meðal annars að tónlist örvar hreyfi- og tilfinningaþroska barna. Tónlistarstundirnar örva öll skynsvið krílanna og þau njóta þess að vera með öðrum börnum og hinum fullorðnu. Börnin skynja stemmninguna sem skapast og upplifa gleðina í umhverfinu. Krílasöngur er fyrir öll lítil kríli og fyrir þitt barn er þín rödd fegurst!
Námskeiðsgjald:
500 kr. á barn á dag
Lengd:
45 mínútur
Staðsetning:
Hafnarborg, Strandgötu 34, Hafnarfirði, jarðhæð, Apótekssalur.
Kennari:
Svafa Þórhallsdóttir
Um kennarann:
Svafa Þórhallsdóttir er fædd í Reykjavík árið 1981. Hún lauk tónlistarkennaraprófi frá Tónlistarskólanum í Reykjavík og síðar mastersgráðu í söng og tónmenntakennslu frá Konunglega Tónlistarháskólanum í Kaupmannahöfn. Svafa starfar sem tónlistarkennari, söngvari og kórstjóri í Kaupmannahöfn. Hún hefur sérstakan áhuga á tónlistarþroska hjá börnum, og er hún hluti af tónlistar hópnum “Den poetiske elefant”/ “Ljóðræni fíllinn” sem flytur reglulega klassíska tónleika fyrir börn.
www.hafnarborg.is
www.songhatid.is
Get Tickets