Jarðvarmahlaup ON
Advertisement
Jarðvarmahlaup ON fer fram í hjarta Hengilsins 👟
Jarðvarmahlaup Orku náttúrunnar verður haldið fimmtudaginn 10. júlí kl. 19:30 á stórbrotnu og lifandi náttúrusvæði Hengilsins, með ræsinguna við Hellisheiðarvirkjun. Hlaupið liggur upp á Hengilssvæðið, þar sem jarðhitinn er allsráðandi, og endar aftur við virkjunina. Þetta einstaka hlaup sameinar útivist, náttúruupplifun og skemmtilega stemningu í umhverfi sem erfitt er að toppa.
Náttúruleið með spennandi landslagi 🏔
Hlaupaleiðin er um 13 km og með flögutímatöku, þannig að allir þátttakendur fá skráðann persónulegan tíma. Leiðin hefst á malbiki og liggur inn í Sleggjubeinsdal, þar sem stikur leiða hlaupara upp í Sleggjubeinsskarð. Eftir það tekur náttúran alfarið við: fjallshlíðar, lækir, grösugir stígar og jeppaslóðar liggja meðfram Skarðsmýrarfjalli og leiða hlauparana í gegnum þetta jarðhitaævintýri, með drykkjarstöð við skálann Hreysi áður en síðustu kílómetrarnir liggja niður í átt að virkjuninni. Þar tekur á móti hlaupurum mikilfenglegt útsýni og gleði í markinu.
Ókeypis þátttaka en takmarkaður sætafjöldi 🎟
Þátttaka í hlaupinu er öllum opin og er að auki frí, en fjöldi þátttakenda er takmarkaður við 500 manns. Forskráning fer fram á https://netskraning.is/jardvarmahlaup-on/ en einnig verður hægt að skrá sig á staðnum á meðan pláss leyfir.
🥇 Frekari upplýsingar og skráning https://netskraning.is/jardvarmahlaup-on/
Get Tickets