Tónlistarsmiðja fyrir 3-5 ára Fullbókað kl. 11
Advertisement
Tónlistarsmiðja fyrir 3-5 ára.
Lau. 28. júní 2025 kl. 11:00-11:45 (fullbókað) og 13:00-13:45. Tímarnir eru aðskildir.
Sönghátíð í Hafnarborg í samstarfi við Hafnarborg býður upp á tónlistarsmiðju fyrir 3-5 ára börn með foreldrum. Í smiðjunni munu börnin eiga saman góða og gefandi stund í gegnum tónlistarupplifun. Sungin eru ýmis skemmtileg lög, dansað, farið í tónlistartengda leiki og spilað á hljóðfæri. Í lokin er í boði að syngja lag í hljóðnema fyrir þau sem vilja. Athugið að hámarksfjöldi er 12 börn.
Staður:
Hafnarborg, Apótekssalur, Strandgötu 34, Hafnarfirði
Námskeiðsgjald: 500 kr. á barn á dag.
Lengd: 45 mínútur.
Dagsetning:
Laugardaginn 28. júní 2025 kl. 11:00-11:45 (fullbókað) og 13:00-13:45.
Kennari:
Valgerður Jónsdóttir
Um kennarann:
Valgerður Jónsdóttir er söngkona og tónmenntakennari frá Akranesi. Hún lauk tónmenntakennaraprófi frá Tónlistarskólanum í Reykjavík árið 2000 og lokaprófi í söng frá Tónlistarskóla FÍH árið 2004. Valgerður hefur frá árinu 2000 kennt tónlist á leik- og grunn- sem og tónlistarskólum hér á Íslandi sem og haldið ýmis tónlistarnámskeið fyrir börn og fullorðna. Valgerður hefur einnig stjórnað barna- og fullorðinskórum í Danmörku og á Íslandi og er nú stjórnandi Barnakórs Lágafellssóknar. Valgerður hefur gefið út fjölmörg lög og texta sem finna má m.a.a á Spotify. Árið 2021 gaf hún út bókina "Tónar á ferð" með eigin lögum í útsetningum fyrir barna- og unglingakóra, en það ár var hún einmitt kjörin Bæjarlistamaður Akraness.
www.hafnarborg.is
www.songhatid.is
Get Tickets