Hugleiðingar um jökulvatn og ást | Tíbrá
Advertisement
„Hugleiðingar um jökulvatn og ást“ er lagaflokkur eftir Hróðmar I. Sigurbjörnsson, byggður á ljóðabók Ingunnar Snædal, „Guðlausir menn, hugleiðingar um jökulvatn og ást“ frá árinu 2006.
Í þremur sms-ljóðum, sem eru vistuð en ekki send, lýsir ung stúlka tilfinningum sínum til annarrar stúlku. Henni er fylgt eftir í hversdagsleikanum, þar sem segir frá ýmsu; dauða ömmu, fjölskyldunni, ástarsambandi í dauðateygjunum og sögum frá heimahögunum. Allt kallast á við hina nýju, forboðnu, ást.
Ljóð Ingunnar eru einföld en jafnframt margslungin, nokkurs konar sjálfsævisaga og ferðalag. Ljóðmælandi er á leiðinni austur á land með systkinum sínum að jarðarför ömmu þeirra. Á ferðalaginu kynnumst við fjölskyldu sögukonunnar; kostum hennar, göllum og leyndarmálum. Dregin er upp mynd af fjölskyldu í sveit og gert góðlátlegt grín að náunganum í leiðinni.
Samtímis upplifum við innra ferðalag ljóðmælandans sem hræðist mjög að segja sínum nánustu frá leyndarmáli sínu, forboðinni ást, og vill alls ekki rugga bátnum og eyðileggja hugsanlega viðkvæmt jafnvægi fjölskyldunnar.
„Hugleiðingarnar“ voru upphaflega samdar fyrir Dúplum dúó þeirrar Bjarkar Níelsdóttur, söngkonu, og Þóru Margrétar Sveinsdóttur, víóluleikara. Þær frumfluttu verkið á Sumartónleikum í Skálholti í júlí 2022. Verkið er nú umskrifað og stækkað með aðkomu hljóðfæraleikara úr Caput en Dúplum verður í aðalhlutverki og leiðir framvindu verksins.
Á undan tónleikunum verður boðið upp á tónleikaspjall klukkan 13:00. Aðgangur á spjallið er ókeypis og öll velkomin.
Get Tickets