Event

Náttúruljóð | Tíbrá

Tónleikarnir bjóða uppá fjölbreytni í hljóðfærasamsetningu og efnisvali. Við fáum að heyra flautuna hljóma eina um allskonar undursamlega og spennandi tóna Atla Heimis Sveinssonar í Tónamínútum ásamt frumflutningi verksins „A day in nature“ eftir franska rísandi tónskáldið Corentin Boissier.

Að lokum heyrum við trio sónötu eftir risann Claude Debussy sem var skrifuð fyrir flautu, víólu og hörpu. Debussy samdi þessa sónötu árið 1915 á þeim tíma þegar hann þjáðist af krabbameini og á meðan Frakkland var enn í stríði við Þýskaland. Verkinu var ætlað að vera annað af sex, en hann lést áður en hægt var að klára fjögur síðustu. Debussy lýsti þessari sónötu sem „í fornu, sveigjanlegu formi án þess að vera mikilfengleg nútímasónata.“

Á undan tónleikunum verður boðið upp á tónleikaspjall klukkan 13:00. Aðgangur á spjallið er ókeypis og öll velkomin.
Get Tickets

Share with someone you care for!

Best of Kopavogur Events in Your Inbox