Event

Sumarmarkaður 2025

Advertisement

Þá er loksins komið að sumarmarkaði sjoppufjölskyldunnar og vina. Markaðurinn hefur fært sig um set og er núna haldinn í Deiglunni í Listagilinu á Akureyri helgina 4.-6. júlí.

Markaðurinn hefur ekki verið haldinn síðan 2023 og því ýmislegt sem safnast hefur á þeim tíma. Flottar og fágaðar vörur á fínu verði.

Almar í Sjoppunni hefur verið einstaklega duglegur að hreinsa til geymslunni en hann hefur safnað að sér gömlum hönnunarvörum í mörg ár.

Merkjavara - Smávara - Föt - Leikföng - Ljós - Stólar - húsgögn - raftæki

Nýjar vörur bætast við daglega. Einnig verða valdar vörur úr Sjoppunni á gjafaverði.

ATH: Enginn posi

Staðsetning: Deiglan í Listagilinu (Kaupvangsstræti 23)

Opnunartími: 11-17 föstudag, laugardag og sunnudag. Ef áhugi verður mikill verður opið lengur.

Símanúmer á staðnum: 864-0710



Advertisement
Share with someone you care for!

Best of Akureyri Events in Your Inbox