Spjallað um fjárréttir fyrr og nú og súpa í Sævangi
Advertisement
Í sumar er unnið að verkefni um fjárréttir fyrr og nú í samvinnu Þjóðfræðistofu á Hólmavík og Sauðfjársetursins með styrk frá Nýsköpunarsjóði námsmanna. Þriðjudaginn 1. júlí kl. 19 verður opinn spjallfundur í Sævangi þar sem sagt verður frá þessu skemmtilega verkefni og rætt og rabbað um fjárréttir, bæði byggingarnar og viðburðinn. Anna Karen, Guðrún Júlíana og Jón Jónsson segja frá og stýra viðburðinum.
Dýrindis kjötsúpa og sætur biti verður á boðstólum á Kaffi Kind á góðu verði fyrir öll sem vilja. Verið öll hjartanlega velkomin.
#réttafólkið #fjárréttirfyrrognú #Sauðfjársetrið #Þjóðfræðistofa