Event

Gönguvika-kvöldferð: Arnarstaðaskál í Eyjafirði 25. júní

Advertisement

Gönguvika-kvöldferð: Arnarstaðaskál í Eyjafirði (2 skór)
Brottför kl. 18 á einkabílum frá FFA, Strandgötu 23.
Safnast saman í bíla ef vill.
Fararstjórn: Jónína Sveinbjörnsdóttir og Helga Sigfúsdóttir sem er heimamanneskja á staðnum.

Arnarstaðaskál í Eyjafirði er snotur, gróin skál eða sylla í fjallinu fyrir ofan Arnarstaði fram í Eyjafirði að austan. Þægilegt gönguland, að mestu bílslóð og kindagötur. Nestisstopp verður tekið á leiðinni þar sem ljúft er að njóta útsýnis og kyrrðar.
Sama leið farin til baka.

Vegalengd alls 9 km. Gönguhækkun: 450 m.

Verð: 2.200 / 3.900 kr. Innifalið: Fararstjórn.
Greitt er fyrir þessa ferð við brottför.

Skráning á ffa.is
ATH ekki er nóg að merkja við "going" í facebookviðburðinum



Advertisement
Share with someone you care for!

Best of Akureyri Events in Your Inbox