Event

Vínsmökkun á sérvöldum spænskum vínum á Höfn í Hornafirði

Ertu til í lítið ferðalag til Spánar?

Í smökkuninni verður bragðað á Spáni í gegnum sex fjölbreytt vín frá mismunandi svæðum. Öll vínin eru frá litlum handverksframleiðendum sem leggja mikinn metnað í bæði ræktun og framleiðslu. Vín þeirra eru að mestu ófáanleg utan Spánar og einn framleiðandinn selur vín sín til að mynda örsjaldan öðrum birgjum en vottuðum Michelin-veitingastöðunum.

Vínin eru sex talsins, eitt freyðivín, tvö hvítvín og þrjú rauðvín sem eru ekki bara mjög bragðgóð heldur líka skemmtileg að bera saman. Í smakkinu verður m.a. boðið upp á tvö rauðvín úr sömu þrúgu, frá sama framleiðanda frá sama svæði sem eru gjörólík á bragðið!

Sóley Björk vínfræðingur sem býr og starfar í Barselóna segir frá vínunum, framleiðslunni, svæðunum og fer yfir hvaða mat þau fara vel með og svara öllum þeim spurningum sem gestum dettur í hug að spyrja um vín og vínframleiðslu.

Smökkunin kostar 9.900 krónur, til að bóka sæti þarf að senda póst á c29sZXkgISBiam9yayAhIGcgfCBnbWFpbCAhIGNvbQ== með nafni og fjölda.



Share with someone you care for!

Best of Egilsstadir Events in Your Inbox