Event

Sumartónar í Salnum - Los Bomboneros

Advertisement

Í sumar býður Salurinn gestum sínum enn og aftur í ljúfa tónlistarupplifun í forsal Salarins, en að þessu sinni undir nýju nafni – Sumartónar í Salnum.

Sumartónar í Salnum eru í anda Sumardjazz tónleikaraðarinnar sem Salurinn hefur boðið upp á undanfarin sumur og slegið hefur rækilega í gegn. Með nýju sniði bjóðum upp á fjölbreyttari tónlistarupplifun þar sem fleiri tónlistarstefnur fá að njóta sín.

Tónleikarnir fara fram á fimmtudögum í júní og júlí kl. 17:00-18:00.

Dagskrá sumarsins:

12. júní - Bogomil Font og Snillarnir
19. júní - Mugison
26. júní - Blood Harmony
3. júlí - Ragga Gröndal
10. júlí - Los Bomboneros
17. júlí - Katrín Halldóra

Aðgangur er ókeypis og öll hjartanlega velkomin á meðan húsrúm leyfir.

Léttar veitingar verða til sölu.



Hljómsveitin Los Bomboneros tekur yfir Sumartóna með seiðandi hljómum og eldheitum rythmum í forsal Salarins, fimmtudaginn 10. júlí.

Los Bomboneros hefur sérhæft sig í tónlist frá Mið- og Suður- Ameríku sem þau munu flytja í bland við eigið efni.

Hljómsveitin hefur komið víða fram og hafa slegið í gegn hjá tónleikagestum, en tónleikarar sveitarinnar eiga það gjarnan til að breytast í funheitt danspartý!

Hljómsveitina skipa:

-Alexandra Kjeld (söngur, bassi)
-Daníel Helgason (tresgítar)
-Kristofer Rodriguez Svönuson (slagverk og bæjarlistamaður Kópavogsbæjar)
-Matthías M. D. Hemstock (slagverk)
-Sigrún Kristbjörg Jónsdóttir (básúna, fiðla, söngur).








Advertisement
Share with someone you care for!

Best of Kopavogur Events in Your Inbox