Event

Sumartónar í Salnum - Katrín Halldóra

Advertisement

Í sumar býður Salurinn gestum sínum enn og aftur í ljúfa tónlistarupplifun í forsal Salarins, en að þessu sinni undir nýju nafni – Sumartónar í Salnum.

Sumartónar í Salnum eru í anda Sumardjazz tónleikaraðarinnar sem Salurinn hefur boðið upp á undanfarin sumur og slegið hefur rækilega í gegn. Með nýju sniði bjóðum upp á fjölbreyttari tónlistarupplifun þar sem fleiri tónlistarstefnur fá að njóta sín.

Tónleikarnir fara fram á fimmtudögum í júní og júlí kl. 17:00-18:00.

Það er engin önnur er hin fjölhæfa og töfrandi söngkona Katrín Halldóra sem mun loka Sumartónum í Salnum í ár.

Hún, ásamt Ásgeiri Ásgeirssyni gítarleikara munu flytja lög úr öllum áttum sem munu koma gestum í ljúfa og létta sumar stemmningu.

Aðgangur er ókeypis og öll hjartanlega velkomin á meðan húsrúm leyfir.

Léttar veitingar verða til sölu.

Dagskrá sumarsins:

12. júní - Bogomil Font og Snillarnir
19. júní - Mugison
26. júní - Blood Harmony
3. júlí - Ragga Gröndal
10. júlí - Los Bomboneros
17. júlí - Katrín Halldóra





Advertisement
Share with someone you care for!

Best of Kopavogur Events in Your Inbox