Event

Rúnni Júl 80 ára afmælistónleikar

Advertisement

Synir Rúnars Júlíussonar heiðra minningu Herra Rokk sem hefði orðið 80 ára þann 13. apríl 2025. Um aukatónleika er að ræða en færri komust að en vildu á fyrstu tónleikana.

Ógleymanleg kvöldstund þar sem ferill rokkskáldsins verður rakinn með tónlist og fleygum sögum af Rúnari og samferðarmönnum hans. Ekkert verður dregið undan í frásögnum og flutningi þar sem hinar ýmsu hliðar eins mesta töffara íslenskrar rokksögu verða kynntar á einlægan og hreinskiptinn hátt.

Einvala lið hljóðfæraleikara munu verða bræðrunum, Baldri og Júlíusi til stuðnings á þessum tónleikum sem munu örugglega ekki klikka.
Get Tickets

Advertisement
Share with someone you care for!

Best of Keflavik Events in Your Inbox