Event

Námskeið fyrir danskennara í grunnskólum

Advertisement

Fimmtudaginn 14.maí, kl. 10:30 - 14:30 mun Íslenska dansfræðafélagið í samstarfi við Félag íslenskra listdansara standa fyrir námskeiði ætlað þeim sem starfa við danskennslu innan grunnskóla landsins.

Leiðbeinendur á námskeiðinu verða:
Atli Freyr Hjaltason (þjóðdansar),
Ingibjörg Róbertsdóttir (paradansar),
Sandra Ómarsdóttir (uppsetning sýninga) og
Guðrún Óskarsdóttir og Þórunn Ylfa Brynjólfsdóttir (skapandi dans).

Ofantaldir aðilar munu segja stuttlega frá aðferðum sínum og markmiðum í kennslu og kynna svo og kenna þátttakendum spor, dansa, æfingar, leiki og verkefni sem þátttakendur geta tekið með sér heim og nýtt í eigin kennslu. Dans hefur verið skilgreindur í Aðalnámskrá um nokkurt skeið og skólar eru í auknum mæli að ráða til sín danskennara í fastar stöður. Þetta námskeið er því vonandi bara það fyrsta af mörgum sem haldin verða þar sem kennarar hittast, skiptast á hugmyndum og læra af hverjum öðrum.

Námskeiðið er haldið á Dansverkstæðinu, Hjarðarhaga 47, 101 Reykjavík og kostar 3.500 kr.

Athugið að skráning er ekki staðfest fyrr en greiðsla hefur borist.
Greitt er með því að millifæra á reikning Dansfræðafélagsins: kt. 5805004040, reikn. 0525-26-5805
Skýring: Kennaranámskeið og nafn þátttakanda.
Get Tickets

Advertisement
Share with someone you care for!

Best of Reykjavík Events in Your Inbox