Event

Kvöldstund með Begga í Sóldögg

Advertisement

Hvenær, ef ekki núna? Hinn mjög svo goðsagnakenndi söngvari Bergsveinn Arilíusson aka Beggi í Sóldögg er flestum unnendum íslenskrar tónlistar kunnugur.

Ferill hans spannar nú yfir 36 ár. Alveg frá því að hann ásamt nokkrum villingum í Breiðholti stofnuðu rappsveit 1988, yfir í The Commitments uppfærslu Fjölbrautarskólans í Breiðholti í
Sóldögg, sólóferil, Vini Vors og Blóma og Papana svo fátt eitt sé nefnt. Við erum að tala um 36 ár á böllum, tónleikum, uppfærslum og athöfnum, 130 gigg á ári með Sóldögg fyrir aldamót….

Á Kvöldstund með Begga í Sóldögg fer Bergsveinn yfir ferilinn og flytur öll sín bestu … og næst bestu lög, fer yfir áhrifavalda og rifjar upp sögur af skemmtilegum meðreiðarsveinum af
vígvellinum , endalausum sveitaballa hringferðum og tónleikaferðum út um allar trissur.

Söngur og sögumaður : Beggi í Sóldögg
Gítar og raddir : Gunnar þór Jónsson
Bassi, Kontrabassi : Jón Ómar Erlingsson
Slagverk og raddir : Eysteinn Eysteinsson
Get Tickets

Advertisement
Share with someone you care for!

Best of Hafnarfjörður Events in Your Inbox