Event

Bjórhátíð Ölverk 2025

Advertisement

Sjáum við þig á Bjórhátíð Ölverk 2025 hér í Hveragerði?!

Ölverk brugghús kynnir bjórhátíð sem enginn sannur bjór-, matar-, og drykkjarsælkeri ætti að láta framhjá sér fara!

Bjórhátíðin mun fara fram helgina 3. til 4. október í alvöru ylræktar gróðurhúsi sem staðsett er miðsvæðis í Hveragerði en miðasala verður auglýstur síðar.

Listi yfir alla þá frábæru framleiðendur sem verða á hátíðinni verður birtur síðar ❤️

----- Aðrar hagnýtar upplýsingar -----

Staðsetning

Ölverk bjórhátíðin fer fram í gömlu, heitu ylræktargróðurhúsi fyrir aftan Ölverk pizza & brugghús, eða nánar tiltekið í Þelamörk 29 - Hveragerði.


Aldurstakmark

20 ára aldurstakmark er á bjórhátíðina ( hafið skilríki meðferðis )

Gisting

Við mælim með því að bóka sem allra fyrst gistingu en það er hægt skoða úrval gististað hér í Hveragerði inn á heimasíðu Ferðamálasamtaka Hvergerðisbæjar ( https://www.visithveragerdi.is/gisting-1 ) en einnig er að finna aðra gistikosti eins og Airbnb húsnæði, hostel, og sumarbústaði í Hveragerði, Ölfusi sem og á Selfossi.

Samgöngur

Allar upplýsingar um Strætóferðir til og frá Hveragerði er að finna inn á www.straeto.is

Bílastæði

Nóg er af bílastæðum á malarplaninu á móti bjórhátíðarsvæðinu.

Veitingasala

Veitingasala verður á bjórhátíðarsvæðinu alla helgina en einnig verður opið á veitingarstað Ölverk samkvæmt opnunartíma (eldhúsið hættir að við pöntunum kl 21:00).



Nánari upplýsingar

Spurningar og fyrirspurnir sendist á b2x2ZXJrIHwgb2x2ZXJrICEgaXM=






Advertisement
Share with someone you care for!

Best of Selfoss Events in Your Inbox